Miðvikudagur 11. mars, 2026
0.8 C
Reykjavik

Þórarinn harðorður: „Hvorki Þórólfur né Katrín skulda þér afsökunarbeiðni“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Nýjasta barefli stjórnarandstöðunnar er að krefja Katrínu Jakobsdóttur um afsökunarbeiðni fyrir að klúðra aðgerðum vegna Covid-19,“ segir Þórarinn Hjartarson sem heldur úti hlaðvarpinu Ein Pæling.

Hann nefnir að hingað til hafi helsta umkvörtunarefni stjórnarandstöðunnar verið „að frelsissviptingarnar vegna veirunnar hafi ekki gengið lengra en raun ber vitni; þau hafa fullyrt að það sem vel hefur gengið sé sóttvarnarlækni að þakka en ekki stjórnvöldum. Nú þegar bakslag á sér stað í baráttunni krefjast þau hins vegar þess að stjórnvöld að biðji þjóðina afsökunar.“

Og það finnst Þórarni ekki vera sanngjarnt.

„Áður vildi stjórnarandstaðan ekki veita ríkisstjórninni hrós fyrir það að vel hafi gengi í Covid, en nú þegar að illa gengur krefjast þau þess að ríkisstjórnin beri ábyrgð,“ segir Þórarinn og finnst þetta vera „þversögn og tvískinnungur“ sem er „flestum augljós.“

Hann telur að „þversagnirnar og tvískinningurinn“ sé líklega „vísbending um það hvað koma skal í komandi kosningabaráttu – því miður.“

- Auglýsing -

Þórarinn nefnir að „Svandís Svavarsdóttir“ heilbrigðisráðherra „sagði nýverið að hún vonaðist til að baráttan við veiruna yrði ekki gerð að pólitísku bitbeini,“ því þetta fyrirbæri sem veiran er „hefur haft áhrif á allt okkar líf; með engum fyrirsjáanlegum endi og mun að sjálfsögðu verða pólitískt bitbein. En afstaða stjórnmálaflokkanna á ekki að vísa til þess hvernig stjórnvöld hafa hagað málum hingað til, heldur til þess hvernig þeir sjái fyrir sér að haga hlutunum í framhaldi, verði þeir kosnir.“

Þórarinn heldur úti vinsælu hlaðvarpi – Ein Pæling. Hefur skoðanir á málunun og tjáir þær vel.

Þórarinn kemur með ansi skemmtilega líkingu máli sínu til stuðnings þegar hann segir að

„ásökunum stjórnarandstöðunnar má líkja við það að í kjölfar EM 2016 hefðu Íslendingar krafið landsliðið um afsökunarbeiðni fyrir það að hafa tapað 5-2 gegn Frökkum,“ er á því að „stjórnarandstöðunni væri nær að sannfæra kjósendur um eigið ágæti, frekar en að fjölyrða um það hvað aðrir eru ómögulegir.“

- Auglýsing -

Og hann endar á þessum orðum sem túlka má sem að þeir sem í brúnni hafa staðið frá upphafi alheimsfaraldursins hafi gert sitt besta og fremur eigi að þakka þeim fremur en skammast í.

„Katrín skuldar þér ekki afsökunarbeiðni. Þórólfur skuldar þér ekki afsökunarbeiðni. Enginn skuldar þér afsökunarbeiðni.“

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -