Tryggvi Helgason er ekki hrifinn af múslimum, svo mikið er víst. Hann tjáir sig um málefni innflytjenda á þræði á samfélagsmiðli þar sem afstaða hans í þeim efnum er kristaaltær:
„Þessi árátta stjórnmálamanna, að ætla að moka inn í landið múslimum í hundraðatali, nálgast hreinasta „ofurbrjálæði!“ skrifar hann og er rétt að hitna:
„Það á ekki að taka við einum einasta manni frá Afganistan, og þeim Afgönum sem hafa getað smeygt sér inn í landið, þeim á umsvifalaust af vísa til baka og svipta af þeim íslenskum vegabréfum.“
Bætir við:
Það getur nú varla verið svo hættulegt fyrir þetta fólk að fara til síns heimalands, Afganistan, þegar einhverjar fjölskyldur laumuðust „heim“ í sumarfrí – allt á kostnað íslenskra skattgreiðenda; fríar flugferðir, fæði og uppihald.“
Lokalausnin hjá Tryggva er afar einföld, í orði að minnsta kosti:
„Burt með alla múslima frá Íslandi – og það mun takast!“

