Hin árlega Drusluganga er á morgun en gangan er ávallt haldin laugardaginn fyrir verslunarmannahelgi. Gengið verður frá Hallgrímskirkju klukkan 14:00 og þaðan niður Skólavörðustíg, Bankastræti og mun gangan enda á Austurvelli. Þar taka við fundarhöld og tónlistaratriði.
Mannlíf talaði við aðstandendur göngunnar þær Evu Sigurðardóttur, Ingu Hrönn, Söru Mansour og Karítas M. Bjarkadóttur og spurði þær nokkurra spurninga í tengslum við gönguna.
Hvaða ár var Druslugangan gengin fyrst ? „Gangan var fyrst gengin sumarið 2011, og hefur verið gengin á hverju ári síðan þá. (Fyrir utan rafræna göngu síðasta sumars vegna covid)“.
Búist þið við miklum fjölda ? „Það er erfitt að gera sér grein fyrir fjöldanum vegna stöðunnar í samfélaginu. En stuðningurinn er mikill og þörfin er skýr út frá umræðum síðustu vikna og mánaða“.
Eruð þið smeykar við að aðgerðir vegna covid muni hafa áhrif á gönguna ? „Staðan í covid málum hefur nú þegar haft áhrif og mun klárlega hafa áhrif á gönguna sjálfa. Við búumst ekki við eins mörgum vegna fjölda smita sem og yfirvofandi aðgerða og takmarkana. En við verðum með grímur og spritt í varningssölunni við Hallgrímskirkju og niðri við Austurvöll, þetta er allt undir berum himni og auðvelt að halda fjarlægð. Við vonumst auðvitað til þess að geta og mega ganga Druslugönguna, því ofbeldi er faraldur sem þarf að ná niður líkt og covid-ið“.
Hér má sjá dagskrá Druslugöngunnar 2021
Ræður
– Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir
– Inga Hrönn
– Sanna Magdalena Mörtudóttir
Tónlist
– BSÍ
– Kristín Sesselja
– Silja Rós

„Með Druslugöngunni viljum við færa ábyrgð kynferðisglæpa frá þolendum yfir á gerendur. Við viljum ekki einblína á klæðnað, hegðun eða fas þolenda sem afsökun fyrir kynferðisglæpi. Færum skömmina þar sem hún á heima!“

Öfgar standa fyrir gjörningum og barmmerkjasölu
Mannlíf hafði samband við Ólöfu Töru Harðardóttur, einn af meðlimum hópsins Öfga og spurði hana út í þeirra þátttöku í göngunni. „Við Hallgrímskirkju munum við dreifa blöðum og skriffærum til göngufólks. Niðri á Austurvelli verður komið fyrir „Skilum skömminni“-kassa og getur fólk þá skrifað það sem því hentar á blöðin, í þeim tilgangi að skila skömminni af sér. Við Öfgakonur munum svo sjá um að farga skömminni á viðeigandi hátt… sem kemur í ljós síðar hvernig verður. Einnig verður botnlausu tjaldi komið fyrir á gangstéttinni við Hallgrímskirkju. Þar býðst gestum og gangandi að stíga inn fyrir og kríta nafn gerenda sinna á gangstéttina. Við skiljum gerendurna svo eftir þar þegar við göngum niður holtið!
Við verðum einnig að selja barmmerki til styrktar málfrelsissjóði á 1.000 kr stykkið. Það er hægt að leggja beint inná reikninginn þeirra 0133-26-201240, kt: 561219-2060 ef fólk kemst ekki á staðinn eða vilt leggja minni upphæð inn eða bara vilt ekki barmmerkið, öll hjálp telur. En eina leiðin til að fá́ barmmerkið er með því að kaupa það beint hjá okkur, allur ágóði rennur svo til málfrelsissjóð. Auðvitað eru fjárhagslegar aðstæður mismunandi hjá́ fólki og það er líka hægt að hjálpa með að vekja athygli á málsstaðinum á samfélagsmiðlum t.d. með að deila síðunni hjá́ málfrelsissjóði ; https://malfrelsissjodur.is/“. Hér má sjá viðburði Öfga á Facebook.


