Laugardagur 8. ágúst, 2026
11.5 C
Reykjavik

Þröstur foreldralaus vegna COVID – „Pabbi hringdi í mig með grátstafinn í kverkunum“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Þröstur Reynisson missti báða foreldra sína af völdum COVID-19 í vor. Hann er sonur hjónanna Jóninnu Margrétar Pétursdóttur og Reynis Mars Guðmundssonar. Hann skrifar minningargrein um þau bæði sem birtist í Morgunblaðinu á mánudaginn en Hringbraut greinir frá.

Jóninna lést þann 23. mars síðastliðinn en Reynir þann 2. apríl. Óhætt er að segja að minningargreinin sýni sorgina sem fylgir veirunni skelfilegu. „Jæja, þar kom að því. Mig hefur lengi langað til að minnast foreldra minna í orðum og núna treysti ég mér loksins til þess. Ég þarf ekki að hafa mörg orð um mömmu mína, hún var yndisleg kona sem kenndi mér margt, hún var góð og ákveðin og kenndi mér að umbera alla. Ég á vini í dag sem hefðu aldrei haft áhrif á líf mitt nema fyrir það sem hún kenndi mér,“ segir Þröstur.

Hann rifjar svo upp þegar hann fór með pabba sínum til Hollands. „Pabbi var aðeins flóknari. Páskana 2018 æxlaðist svo að við pabbi fórum í ferð til Hollands til að afhenda bíl sem ég hafði selt á Facebook. Þrátt fyrir mjög dökka veðurspá var lagt af stað og gekk vel framan af. Í Öræfasveitinni gat brugðið til beggja vona, 43 metrar í hviðum þvert á veginn. Einhverra hluta vegna var ég beðinn að aka þennan hluta leiðarinnar. Það kom ekkert annað til greina; þetta var keyrt á fullri gjöf,“ segir Þröstur og heldur áfram:

„Pabbi hafði alltaf kennt mér að þetta væri bara stríð á milli tveggja afla; annars vegar vindsins og svo hraðans á bílnum og í þetta skiptið sigraði hraðinn á bílnum. Þegar lengra dró á ferðina var orðið nokkuð ljóst að Fjarðarheiðin myndi reynast farartálmi og var ég þá aftur beðinn að aka. Mér varð nokkuð ljóst eftir þessa ferð að pabbi treysti mér fullkomlega til að keyra þegar aðstæður voru erfiðar og það er nokkuð sem mér þykir vænt um. Þegar við feðgar komum heim eftir þessa ferð gerðist nokkuð sem aldrei hafði gerst áður; við feðgar tókum hvor utan um annan og þökkuðum fyrir okkur.“

Hann minnist svo samtals þeirra þegar Jóninna lést. „Kvöldið 23. mars 2020 gerðist nokkuð annað sem við höfðum hvorugir upplifað; pabbi hringdi í mig og tilkynnti mér með grátstafinn í kverkunum að mamma væri dáin. Ég hafði bara eitt svar handa honum: Pabbi, ég elska þig. Þetta var eitt af síðustu skiptunum sem ég talaði við pabba.“

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -