Þórunn Antonía Magnúsdóttir hefur orðið fyrir margvíslegum áföllum í lífi sínu, en þessi frábæra söngkona opnar sig í færslu á Instagram-reikningi sínum:
„Orðlaus. Frosin. Dofin. Óglatt. Hey þolandi. Nennirðu að hætta að vera svona óþolandi. Það er leikur í gangi sko. Hey allir litlir strákar sem líta upp til fótboltamanna og frægra gaura sem axla enga ábyrgð. Skilaboðin eru skýr. Það má nefnilega nauðga eða misnota og beita ofbeldi og leggja í einelti ef þú ert geggjað góður í að spila fótbolta eða syngja og leika og svoleiðis.
Stelpur, ekki skemma stemminguna með að segja frá það er bara leiðinlegt og skaðlegt fyrir þeirra orðspor og feril. Svo máttu heldur ekki sko segja frá nafnlaust því þá ertu að eyðileggja mannorð. Komdu frekar fram undir nafni því þá getur öll þjóðin gaslýst þig í sameiningu og kallað þig athyglissjúkan lygara.“
Þórunn Antonía heldur áfram:
„En ekkert hlusta samt á mig því ég hef verið beitt ofbeldi og kynferðisofbeldi oftar en einu sinni sem náttúrulega gerist ekki fyrir neinn það vita allir, þannig að ég er líka bara óþolandi.“
Þórunn Antonía var „rekin ólétt úr vinnunni fyrir að segja frá einelti á vinnustað af mjög frægum manni sem vildi losna við mig því það var ekkert „sell í því að hafa konu með barn á brjósti í sjónvarpi.“ Ég náttúrulega bara húmorslaus og bara ömurleg að segja frá þessu nafnlaust á sínum tíma, síminn minn hætti að hringja, ekki hans, það get ég lofað ykkur.“
Hún segir líka frá hræðilegu ofbeldi sem hún varð fyrir af hendi fyrrverandi kærasta hennar:
„Fyrrverandi kærasti tók í sitthvorn ökklann á mér þegar ég lá á maganum á grúfu, lamandi hrædd og slengdi mér í gólfið aftur og aftur og aftur með þeim afleiðingum að ég fór með sjúkrabíl á bráðamóttöku og lá með morfín í æð. Ég festist reglulega ennþá í bakinu. Sá sami lagðist ofan á mig, tók fyrir munninn á mér og nefið á sama tíma og ég náði ekki andanum það lengi að báðar varir mínar sprungu og það blæddi inn á augun mín. Við erum samt alveg „vinir“. Þægilegra fyrir móralinn.“
Þórunn Antonía segir svo að „gaurinn sem ætlaði að hjálpa mér að vinna úr meiðslunum misnotaði mig, vitandi alla söguna. Já, allt því ég elska athygli. Allt því ég er svo óþolandi alveg eins og þessar konur sem eyðileggja nú fótboltann. Af hverju er ég að skrifa þetta? Af því að ég á ekki fokking orð yfir fullorðna fólkinu sem á að vita betur en að hylma yfir ofbeldi í þágu skemmtana. Mórals eða íþrótta. Ó, þolandi. Þetta er ÓÞOLANDI.“