„Mér barst fyrirspurn frá DV um afstöðu mína gagnvart bólusetningum sem þó snýr ekkert að minni afstöðu heldur að viðkvæmum persónuupplýsingum um mig og barnið mitt.
Sko nú er ég eindregin stuðningskona bólusetninga og deildi stolt mynd af mér í bólusetningunni við Covid en hér segi ég stopp,“ segir Þórhildur Sunna og bætir við:
„Í fyrsta lagi getur verið að einstaklingur hafi ekki farið í bólusetningu vegna undirliggjandi sjúkdóma eða ofnæmis þó þau gjarnan vildu. Þessi spurning gerir þeim að upplýsa um sjúkdóma eða aðrar viðkvæmar persónuupplýsingar til þess að virðast ekki mótfallin bólusetningum, nú eða að segja hreinlega ósatt til þess að viðhalda friðhelgi sinni. Það er ekki boðlegt né góð blaðamennska. Þingmenn búa við minni friðhelgi einkalífs en aðrir en við eigum enn almennt rétt á friðhelgi gagnvart heilsufarsupplýsingum,“ og er langt í frá að vera sátt:
„Að fara svo að krefjast þess að ég og aðrir upplýsi um heilsufar barnanna okkar er fyrir neðan allar hellur. Hingað til trúði ég því að börn pólitíkusa væru í skjóli frá ágengum spurningum blaðamanna, hvað þà viðkvæmar persónuupplýsingar þeirra en þetta virðist vera að breytast. Ég segi bara látið barnið mitt í friði! Hann er ekki opinber persóna og þið eigið engan rétt à upplýsingum um hann.“

