Miðvikudagur 14. janúar, 2026
-3.2 C
Reykjavik

Þórdís gekk fram á pervert hjá sýslumanninum í Kópavogi: „Datt ekki í hug að skipta mér af því rúnki“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Þórdís Gísladóttir, rithöfundur og þýðandi, lenti heldur betur í ógöngum á leið sinni til Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu á dögunum. Hún greinir frá því á Twitter að ekki nóg með að hafa villst tvisvar á leiðinni hafi hún einning gengið fram á karlmann að fróa sér utandyra þar í nágrenni.

„Fór til sýslumannsins í Kópavogi og villtist bara tvisvar. Í seinni villunni sá ég mann fróa sér á göngustíg. Datt ekki í hug að skipta mér af því rúnki,“ segir Þórdís.

Þorvaldur Sverrisson skrifar athugasemd og bendir henni á að það sé ákveðnir hópar sem eru á ferðinni gangandi í Kópavogi. „Fólk sem fer fótgangandi milli staða í Kópavogi er rúnkarar, rónar, dópistar eða fólk sem er gjaldþrota og búið að missa prófið. Og þú, sem er visst áhyggjuefni.“

Því svarar Þórdís: „Samt gott pláss fyrir okkur lúserana þarna á milli hraðbrautanna. Ég þurfti samt að hlaupa soldið hratt tvisvar yfir götu til að Range Rover æki ekki yfir mig.“

Þórir nokkur Grétar spyr hvort hún hafi tekið mynd af manninum. „Nei, reyni bara að gleyma þessu. Skil svolítið að maðurinn hafi þurft að fá útrás í þessum steinsteypufrumskógi og gatnaslaufum. Hann hefur örugglega líka verið villtur.“

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -