Leikkonan, rithöfundurinn og fyrirlesarinn Þórdís Elva Þorvaldsdóttir fer gjörsamlega á kostum í nýju myndbandi sem hún sendi frá sér á samfélagsmiðlum í gær. Þar dregur hún þekkta gerendur í ofbeldismálum sundur og saman í háði.
Myndbandið hefur vakið gríðarleg viðbrögð en þegar frétt þessi er rituð hafa 1200 líkað við myndbandið sem hefur verið deilt 633 sinnum. Þá hafa hátt í 80 athugasemdir verið skrifaðar við myndbandið.
Í myndbandinu leikur Þórdís Elva starfsmann „krísulínunnar Sjomlar“ sem svarar manni að nafni Fróði í símanum en hann vill aðstoð vegna máls sem var að koma upp. Vandamálið er að hann beitti fyrrverandi kærustu sína andlegu ofbeldi og hótaði að beita hana kynferðislegu ofbeldi svo árum saman hafi hún verið í andlegri gíslingu og nú væri hún sem sagt búin að segja frá þessu opinberlega. Þórdís Elva gefur honum ráð sem eru löðrandi í kaldhæðni. Sjón er sögu ríkari:

