Baldvin Þór Bergsson tekur við starfi ritstjóra nýs Kastljóss á Rúv. Mun hann því láta af störfum sem dagskrárstjóri Rásar tvö og númiðla Rúv um mánaðarmótin.
Kjarninn fjallaði um málið í dag. Segir þar ennfremur að Baldvin Þór muni samhliða nýja starfinu, muni hann áfram leiða verkefnið „nýr ruv.is“ og aukreitis móta tillögur að framtíðarfyrirkomulagi vefritstjórnar rúv.
Er þetta í annað skiptið sem Baldvin vinnur í Kastljósinu en árið 2015 gekk hann til liðs við þáttinn sem einn umsjónarmanna þáttarins en síðar varð hann annar ritstjóra hans. Áður hafði hann unnið sem fréttastjóri og vaktstjóri á fréttastofu Rúv um þó nokkurt skeið.
Fram kemur í Kjarnanum að Baldvin hafi verið einn þeirra er sóttu um stöðu útvarpsstjóra Rúv þegar staðan var auglýst síðast, seint 2019 en Stefán Eiríksson hlaut starfið.

