Þriðjudagur 17. mars, 2026
0.8 C
Reykjavik

Þór myrti strætisvagnabílstjóra við Víðimel: „Þetta kemur upp í hugann á mér á hverjum degi“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Þór Sigurðsson myrti Braga Óskarsson strætivagnabílstjóra með köldu blóði við Víðimel í Vesturbænum árið 2002. Þór reynir í dag allt til að verða betri maður, afplánaði sinn dóm og fetaði menntaveginn. Í dag á hann fjölskyldu og er í góðu starfi.

„Þetta kemur upp í hugann á mér á hverjum degi. En við breytum ekki fortíðinni og við getum ekkert gert í henni. Það sem gerðist, gerðist. Alveg sama hvað við reynum,“ sagði Þór í þættinum Ummerkjum á Stöð 2 þar sem hann sagði sögu sína fyrir og eftir morðið.

Byrjaði að reykja gras

Þór fór í skóla í Bandaríkjunum og þar reyktu flestir gras. Þá hófst hans neysla. „Neyslusaga mín er tiltölulega stutt miðað við marga, hún fer mjög hratt upp og kemur mjög hratt niður. Ég kem heim, fer í meðferð og fer á sjóinn. Það gengur ágætlega en síðan kem ég í land, átti helling af pening og þá eiginlega kom svona crash,“ segir hann og fór þá að sækjast í örvandi fíkniefni. Til að greiða fyrir neysluna ætlaði Þór hið örlagaríka kvöld að brjótast inn á versktæðið sem hann vann á:

„Ég man ég var í einhverju partýi með einhverju fólki. Við byrjuðum kvöldið áður, vorum þarna á einhverju tjútti og svo var orðinn peningaskortur og þá vantaði meiri pening. Mig vantaði meiri pening fyrir meiri efnum og ég vissi að það væri alltaf smá peningur í skápnum og vissi hvernig ég ætti að fara inn, vissi talnaröðina.“

Á leiðinni mætti hann Braga. Aðspurður segist Þór ekki muna atburðarrásina í smáatriðum.

- Auglýsing -

„Nei. Því miður. Þetta var bara, óheppni, í rauninni. Fyrir hann. Að lenda á þessum stað, á þessum tíma, með mér. Því miður. Þetta var bara tilviljun ein sem olli þessu. Ég veit ekki hvort ég hafi blokkað það út eða hvort ég hafi verið í þannig ástandi að ég muni það ekki en ég gat aldrei gefið neina greinargóða lýsingu á því hvað átti sér stað.“

Bar fyrir kveðju

Eins og áður sagði hefur Þór afplánað dóm sinn og er á góðum stað í dag. Í afplánun dómsins bað hann fangelsisprestinn að bera kveðjur til aðstandenda Braga.

- Auglýsing -

„Það kom mér ótrúlega mikið á óvart hvað ég átti mikið af vinum sem studdu mig enn þá, þrátt fyrir það sem ég hafði gert. „Mamma var aldrei reið við mig, aldrei út af þessu. Pabbi var þarna líka en þau voru ekki reið Það þarf ótrúlega mikið af fólki að lifa með því sem ég gerði. Ég get ekki breytt þessu á neinn hátt og ég tek afleiðingunum. En verknaðurinn engu að síður átti sér stað og það er ekkert sem ég get gert sem getur tekið þetta til baka. Að reyna að gera mig að betri manni þannig að ég geti gefið meira af mér í staðinn. Og það er í rauninni það eina sem ég get gert í dag.“

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -