Miðvikudagur 11. mars, 2026
0.8 C
Reykjavik

Þjóðin hundsvekkt með niðurstöðu talningar­­málsins – Eiríkur: „Þetta er það sem við mátti búast“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Einungis Aðeins þriðjungur fólks á kosningaaldri er sáttur með hvernig Alþingi lauk afgreiðslu talningarmálsins, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Prósents.

Af öllum sem tóku þátt í könnuninni eru 46% óánægð með að seinni talningin í Norðvesturkjördæmi skyldi hafi verið látin standa:

„Þetta endurspeglar auðvitað það að atburðirnir sem áttu sér stað í norðvestri voru alvarlegir og meiriháttar klúður. Þeir hafa örugglega orðið til þess að rýra traust á kosningafyrirkomulaginu upp að einhverju marki, þótt það traust sé líklega ekkert horfið,“ segir Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði. Hann segir niðurstöðu könnunarinnar ekki koma á óvart:

„Þetta er það sem við mátti búast miðað við alvarleika málsins. Það er líka erfitt að átta sig á hvað hinir óánægðu hefðu viljað gera í staðinn; hvort þeir hefðu viljað láta fyrri talningu standa; hvort þeir hefðu viljað láta kjósa aftur í Norðvesturkjördæmi; eða hvort kosningarnar yrðu í heild sinni ógildar. Það liggur ekki fyrir,“ segir Eiríkur.

- Auglýsing -

Kemur fram að fólk á landsbyggðinni er ánægðara en höfuðborgarbúar, og sömu sögu er að segja um afstöðu fólks eftir búsetu.

Minnst mældis ánægjan meðal þeirra sem hafa lágar tekjur; fjórðungur þeirra er einnig fjölmennasti hópur þeirra sem er hvorki ánægður né óánægður með afgreiðslu þingsins á málinu:

- Auglýsing -

„Ríkisstjórnarflokkarnir eru auðvitað ánægðari með þessar niðurstöður, sér í lagi kjósendur Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins,“ segir Eiríkur sem kemur á óvart hve munurinn milli kjósenda flokkanna sé mikill.

Þingflokkur VG klofnaði í atkvæðagreiðslu um málið, þar sem nokkrir þingmenn VG greiddu atkvæði gegn því að staðfesta kjörbréf þeirra sem náðu kjöri vegna seinni talningar í Norðvesturkjördæmi; aðrir þingmenn flokksins greiddu atkvæði með staðfestingu allra kjörbréfa.

Miklu fleiri kjósendur Miðflokksins og Flokks fólksins eru óánægðir en kjósendur flokkanna sem ánægðir eru með lendingu þingsins.

Miklu meiri óánægja er þó með niðurstöðu þingsins meðal kjósenda annarra stjórnarandstöðuflokka; mest er óánægjan á meðal kjósenda Pírata; 84% þeirra eru óánægðir með niðurstöðuna:

„Þetta fellur líka saman við aðra línu í íslenskum stjórnmálum. Það er þessi þungamiðja í íslenska flokkakerfinu – fylgjendur þeirra flokka eru ánægðari með niðurstöðurnar en kjósendur þeirra flokka sem hafa stillt sér upp sem kerfisbreytingaflokkar,“ segir Eiríkur.

Nokkra athygli vekur að tæpur helmingur þeirra sem ekki kusu, eða 49%, eru óánægð með niðurstöðu þingsins í málinu umdeilda.

Könnun þessi var framkvæmd 1. til 10. desember 2021, en um netkönnun var að ræða; hún var send til alls 2.300 einstaklinga, átján ára og eldri og svarendur voru 1.141, svarhlutfallið 49,6%.

Einstaklingar á aldrinum 25 til 44 ára eru óánægðastir með afgreiðslu Alþingis á málinu, samkvæmt niðurstöðum könnunar Prósents.

Aðeins 27% þessa aldurshóps eru ánægð með afgreiðsluna; yfir fimmtíu% þessa aldurshóps eru hins vegar óánægð með niðurstöðu málsins.

Ánægjan með afgreiðslu þingsins eykst svo með hækkandi aldri; en ánægjan nær þó ekki yfir 50% í neinum aldurshópi, og lítill munur er á afstöðu kynjanna til málsins; karlar eru þó ánægðari með afgreiðslu þingsins en konur.

Sömu sögu er að segja um afstöðu eftir búsetu; landsbyggðin er ánægðari með niðurstöðu málsins en fólk af höfuðborgarsvæðinu.

Einnig kemur fram að ánægja er minnst meðal þeirra sem lægstar hafa tekjurnar, en fjórðungur þeirra er fjölmennasti hópur þeirra sem segist hvorki ánægður né óánægður með niðurstöðu þingsins á málinu umdeilda.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -