Ef allir fimm sem kærðir hafa verið af Ingó Veðurguði sætta sig við afarkostina sem þeim eru settir af honum og lögmanni hans, Vilhjálmi Vilhjálmssyni, og borga uppsett verð – sem virðist vera þrjár milljónir á mann – sem Mannlíf hefur ekki í öllum tilvikum fengið staðfest – í síðasta lagi 19. júlí, þá gæti Ingó fengið 15 milljónir króna inn á reikning sinn fljótlega.
Það munar um minna.
Og hvað skyldi Ingó gera við aurinn ef áætlun hans og Vilhjálms gengur í alla staði upp? Mögulega gæti það tengst sól og sumaryl og ferð eða ferðum til fjarlægra stranda.

Sumarið 2021 hefur verið hér á höfuðborgarsvæðinu ekkert annað en haust, og vorið var oft eins og vetur. Það er því sólarlöngun mikil í Íslendingum. Kannski í Ingó líka?
Ef hann myndi ákveða að ferðast með fimmtán kúlur inni á reikningi eða „borga með einhverju korti frá þér sem ég tók alveg óvart með mér“ gæti hann farið á nýjan leik til Bahama, en þangað ferðaðist Ingó í apríl 2019. En Bahama er jú augljós tilvísun í vinsælasta lag Ingós frá upphafi, sem heitir einmitt Bahama.

Eftir nokkra leit blaðamanns á netinu kom það í ljós að hægt er að fá flug til Bandaríkjanna og þaðan til höfuðborgar Bahama-eyja, Nassau, fyrir 1771 pund, sem gera á gengi dagsins í dag 303 þúsund og 744 krónur.

Í því er auðvitað ekki innifalin gisting og fæði og verðið á samanlögðum pakkanum fer líka eftir því hversu löng dvölin yrði. Og að sjálfsögðu er ekki fyrirfram hægt að gefa sér einhverjar neyslutölur, en það kostar alltaf skildinginn að vera í fríi í útlöndum.

Kannski myndi besti vinur aðal, Villi Vill, koma með og það yrði partý af dýrari gerðinni. Mögulega gætu þeir félagar kennt innfæddum alvöru brekkusöng; myndu kannski búa til nýtt form eða afbrigði þess fræga söngs, og gæti hann kallast sandsöngurinn; yrði áhugavert.
Ef planið gengur upp verður kostnaður ferðarinnar ekki vandamál hjá Ingó fái hann milljónirnar fimmtán í miskabætur, því það þarf ekki einu sinni að greiða af þeim skatt.

Upphæðin ætti líka, ef ferðin mögulega til Bahama er dregin frá, að duga Ingó til að bæta upp að einhverju eða jafnvel öllu leyti það tekjutap sem hann hefur orðið fyrir vegna hinna meintu kynferðisbrota.
Hér kemur að lokum texti Ingós við hið vinsæla lag Bahama:
Síðan þú fórst hef ég verið með
magakveisu
skildir ekkert eftir nema þessa peysu
verst finnst mér þó að núna ertu með honum
veistu hvað hann hefur verið með mörgum konum
svo farðu bara, mér er alveg sama
ég þoli ekki svona barnaskóladrama
ég ætla að pakka í töskurnar og flytja til…
Bahama eyja Bahama eyja Bahama eyja Bahama
Allar stelpurnar hér eru í bikiní
og ég er búin að gleyma peysuflíkinni
ég laga hárið og sýp af stút
búin að gleyma hvernig þú lítur út
í spilavítinu kasta ég teningum
í fyrsta sinn á ég helling af peningum
borga með einhverju korti frá þér
sem ég tók alveg óvart með mér
til Bahama eyja Bahama eyja Bahama eyja Bahama
Bahama eyja Bahama eyja Bahama eyja Bahama
Alla daga ég sit hér í sólinni
minnugur þess þegar ég var í ólinni
þú sagðir mér þá að þrífa og þvo
meðan í takinu hafðir tvo
núna situr þú eftir í súpunni
ófrísk og einmana alveg á kúpunni
og þennan söng hef ég sér til þín ort
og ég vona að ég fái kort
til Bahama eyja Bahama eyja Bahama eyja Bahama
Bahama eyja Bahama eyja Bahama eyja Bahama
Bahama eyjar Bahama eyjar Bahama eyjar Bahama
Bahama eyjar Bahama eyjar Bahama eyjar Bahama
Bahama eyjar…

