Það virðist ekkert feimnismál fyrir nokkrar íslenskar konur að þær bjóði upp áskrift að sér á vefsíðunni Onlyfans. Þær auglýsa það fyrir allra augum og undir fullu nafni. Vefsíðan gengur út á það að notendum er gert kleift að selja efni, yfirleitt myndir eða myndbönd, til áskrifenda gegn mánaðarlegu gjaldi. Líkt og gefur að skilja er fólk yfirleitt að borga fyrir nekt.
Þrjár íslenskar konur halda úti sameiginlegum kynnissíðum á Instagram og Twitter. Tvær þeirra eru svo með tengla á einkaaðgang sína þar sem má sjá myndir af þeim á árshátíðum eða að stilla sér upp með móður sinni. Þær virðast því ekki fela athafnir sínar á netinu. Þrátt fyrir þetta skulum við láta duga að nota fornöfn þeirra, ein heitir Jóhanna, önnur Karen en sú þriðja felur nafn sitt. Þær fyrrnefndu eru 24 og 26 ára en óljóst hve gömul sú þriðja er þar sem hún kemur ekki fram undir nafni.
Þær tvær fyrrnefndu segjast vera meðal þeirra allra vinsælustu á vefsíðunni og hlýtur það að teljast nokkuð gott þar sem samkeppnin er hörð erlendis. Bæði Jóhanna og Karen segjast vera meðal fyrsta prósentsins hvað varðar vinsældir. Sú þriðja virðist þó nýlega byrjuð en áskrift hennar er þó dýrust. Notendur ráða hvað þeir verðleggja áskrift og eru jafnvel með afsláttartímabil. Þannig kostar áskrift að Jóhönnu nú 10 dollara en gott er að hafa í huga að það er á 50% afslætti. Karen er með sama afslátt en áskrift hennar kostar örlítið meira eða 12,50 dollara. Sú nýbyrjaða er með engan afslátt og verðleggur áskriftina á 25 dollara eða sem nemur 3500 krónum á mánuði.
Ekki er hægt að sjá hve marga áskrifendur viðkomandi hefur en þó má sjá fjölda læka á myndir. Þau telja á þúsundum hjá Karen og Jóhönnu. Það er því ljóst er að þegar þetta er tekið saman þá er þetta líklega að gefa ágætlega í aðra höndina. DV ræddi nýverið við nafnlausar íslenskar konur sem nota Onlyfans, þar af ein 19 ára. Ein þeirra sagðist fá ríflega 800 þúsund krónur á mánuði ef hún sinnti því. Það er álíka mikið og ríkisstarfsmenn fengu að meðaltali árið 2018. Hún gaf í skyn í sama viðtali að hún fengi talsvert meira í dag.
„Það er rosaleg fáfræði um hvað OnlyFans snýst um og hvað fólk er að gera á síðunni. Ég get án efa sagt að þetta sé skemmtilegasta vinna sem ég hef nokkurn tíma haft. Ég byrjaði ekki að þéna meira en 800 þúsund krónur á mánuði fyrr en ég setti allan fókus á að gera vel,“ sagði hún. Óljóst er hve margir Íslendingar nota síðuna en svo virðist sem ungar, íslenskar konur séu að hasla sér völl þar.
Hún sagði að þetta væri ekki eintómur dans á rósum. „Það gerir notendum lífið leitt. Íslenskum kortum er líka mjög oft hafnað og það gerir þetta að leiðinlegu og erfiðu ferli. Ég hata síðuna jafn mikið og ég elska hana. Helsti kosturinn er að það er ekkert smá auðvelt að búa til peninga sem eru svo miklir að það er óraunverulegt.“

