Halldór Guðmundsson leigubílstjóri og varaformaður Bifreiðastjórafélagsins Frama segist hafa farið um fimmtán ferðir á dag áður en kórónuveirufaraldurinn skall á landinu af fullum þunga. Nú fer hann hins vegar aðeins örfáar ferðir á dag.
„Ég get trúað að þetta hafi verið 60-70% afföll af vinnu þegar heilt er yfir litið,“ segir Halldór í samtali við Vísi.
Sjá einnig: Leigubílstjórar vilja bætur vegna COVID-19
Margir leigubílstjórar hafa hrakist úr starfi á seinustu misserum og enn er lítið að gera þrátt fyrir að ferðamenn séu farnir að koma til landsins á nýjan leik.
Fólk fer einnig minna út að skemmta sér þar sem opnunartími skemmtistaða og bara hefur verið verulega styttur og um tíma var þeim gert að loka alveg vegna faraldursins.
Þar með minnkar notkun leigubíla töluvert.
Halldór, sem byrjaði að aka leigubíl árið 1982, hefur þó einungis ekið á daginn undanfarin ár og látið aðra um næturaksturinn.
Hann segir ástandið vera afar slæmt. „Þetta er bara búið að vera hreint út sagt ömurlegt alveg. Mjög lítil vinna og maður skilur oft á tíðum ekki á hverju menn lifa. Það er nú sennilega það að menn hafa verið að éta sennilega upp einhverja varasjóði sem þeir hafa átt og lifað á þeim en þetta hefur verið mjög erfitt hjá mörgum.“

