Miðvikudagur 14. október, 2026
4.8 C
Reykjavik

Þessi auglýsing veldur usla í Reykjanesbæ: „Er þetta einhver ný skiltagerð sem sér um svona?“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Frumlegt auglýsingaskilti verslunarinnar Maniolo Heimilistæki í Reykjanesbæ hefur vægast sagt vakið mikla athygli undanfarið.

Fólk hefur þó ansi misjafnar skoðanir á því, mörgum finnst þetta sniðug leið til að auglýsa sig, á meðan öðrum finnst auglýsingaskiltið sóðalegt.

Sjöfn nokkur birti mynd af umræddu skilti inni á Facebook hópi Reykjanesbæjar og skrifaði: „Er þetta einhver ný skiltagerð sem sér um svona? Er bara allt í lagi að vera með ónýtar þvottavélar úti um allt. Má maður þá bara henda ruslinu sínu í vegkantinn innanbæjar ef maður málar það bara fyrst?“

Umrætt auglýsingaskilti Heimilistækja í Reykjanesbæ.

„Vá, svo sammála.. Ekki beint að hvetja mann til að versla við þá með þessu,“ skrifar Ester.

„Sóðalegt,“ skrifar ein.

Meirihluti þeirra sem hafa tjáð sig um málið virðist þó vera ánægðir með uppátækið.

- Auglýsing -

Margrét nokkur skrifar: „Ég mundi flokka þetta sem listræna tjáningu á auglýsingamarkaði og það án þess að einhver auglýsingastofa sem krefst fúlgu fjár kæmi að og hefði fengið minni athygli en þetta. Það er eitt að safna rusli og annað að tjá sig með þessum hætti. Víkingasverð hvað!!!“

„Mer finnst þetta bara geggjuð nýting,“ skrifar ein og annar segir: „Ekkert að þessu.“

Jóhönna segir þetta mjög sniðugt: „Finnst þetta frábær auglýsing. Ef þetta væri venjulegt skilti mætti ætla að það gæti fokið. Enn þvottavélin haggast ekki.“

- Auglýsing -

„Það er bara ekki neitt að þessu- finnst þetta bara mjög skemmtileg auglýsing. Fær mann til þess að brosa, allavega mig annað en þetta blessaða Atlantsolíu skilti,“ segir einn.

Gísli skrifar: „Þetta er bara snilld. Frábær hugmynd og vakti mikla athygli. Bara vel gert. Greinilegt að sú sem setti inn þennan status ætlaði sér að búa til leiðindi út af engu. En þetta er bara snilldar auglýsing. Spurning hvort vélin virki hehe.“

Eigandi verslunarinnar kemur inn í umræðuna og tilkynnir að búið sé að fjarlægja þvottavélina. Hann býður jafn framt öllum viðskiptavinum sínum 15% afslátt af kaupum með því að framvísa mynd af þvottavélinni frægu.

Gylfi nokkur sem hefur átt viðskipti við verslunina skrifar: „Ég þekki eiganda þessarar verslunar og get vottað fyrir það að hann er heiðarlegur maður. Held ekki að það sé mögulegt að fá betri og persónulegri þjónustu nokkurs staðar á Íslandi en hjá honum.“

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -