Thelma nokkur segir farir sínar ekki sléttar inn á Facebook hópnum: Frétta og upplýsingarsíða fyrir Sandgerðinga.
„Afsakið mig og fyrirgefið. Nú verð ég að segja frá. Ég var að keyra Suðurgötu rólega eins og á að gera. 2 litlar stúlkur á hlaupahjóli voru á gangbraut á horni Miðhúsa. Ég stoppa þær fara af hjólinu og leiða yfir. Fyrir aftan mig er bíll sem stoppar en þegar þær leggja út á götuna þá tekur þessi bíll fram úr mér öflugum megin. S.s. hægra megin. Og leggur fyrir utan Miðhús. Afsakaðu mig og fyrirgefðu. Þetta er ekki í boði. Sama hver er afsökunin,“ segir Thelma í færslu sinni og er auðsjáanlega mikið niðri fyrir.
Thelma birtir svo mynd af bílnum sem var ekið öfugumegin fram úr henni við gangbrautina og tekur fram að bílnúmerið endi á 87.


