- Auglýsing -
Talsvert tjón varð vegna bruna í Hafnarfirði á fjórða tímanum í nótt.

Sem betur fer var enginn í íbúðinni þegar eldurinn kom upp.
Að sögn varðstjóra hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins er á þessari stundu ekki vitað um eldsupptök, en sjáanlegur eldur var á efstu hæð hússins þegar lögregla kom á vettvang.

Mest tjón – aðallega vegna reyks og sóts – varð í eldhúsi risíbúðarinnar.
- Auglýsing -
Gekk greiðlega að slökkva eldinn sem var einskorðaður við þessa einu íbúð í húsinu.

