Fimmtudagur 8. október, 2026
7.8 C
Reykjavik

Svona lítur kröfubréf Ingós út – „Kærðu það sorpið þitt“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Ólöf Tara Hjartardóttir einkaþjálfari hefur beðið Ingólf Þórarinsson tónlistarmann, betur þekktur sem Ingó Veðurguð, afsökunar. Ekki þó á ásökunum á hendur honum fyrir kynferðisbrot og ósæmilega hegðun í garð kvenna heldur fyrir að hafa sungið og trallað við tónlist hans í gegnum tíðina. Það er eina afsökunarbeiðnin sem Veðurguðinn fær frá Ólöfu.

Í gær greindi Mannlíf frá nöfnum þeirra fimm sem Ingólfur veðurguð fékk lögmann sinn, Vilhjálm H. Vilhjálmsson, til að senda kröfubréf. Í þeim er farið á leit að viðkomandi biðji Veðurguðinn afsökunar á ærumeiðandi ummælum í hans garð, dragi þau til baka og greiði honum miskabætur og lögfræðikostnað. Ólöf Tara ein ein þessara fimm og hún svaraði kröfu Ingó um afsökunarbeiðni með eftirfarandi hætti í gærkvöldi og birti þar jafnframt kröfubréfið:

„Mín afsökunarbeiðni til þín. Mín eina eftirsjá er að syngja og tralla við þessa drepleiðinlegu tónlist þína. Kærðu það sorpið þitt.“

En það voru Edda Falak áhrifavaldur, Sindri Þór Sigríðarson Hilmarsson viðskiptafræðingur, markaðsstjóri, baráttumaður og fyrrverandi framkvæmdastjóri Pírata, Ólöf Tara, einn forsvarsmaður aðgerðahópsins Öfga, Kristlín Dís Ingilínardóttir blaðamaður á Fréttablaðinu og Erla Dóra Magnúsdóttir, blaðamaður á DV, sem fengu kröfubréf send til sín.

Sindri Þór Hilmarsson er einn af þeim fimm einstaklingum sem sem Ingó Veðurguð hefur kært fyrir meiðyrði, og kippir sér lítið upp við það og sendir Ingó kaldar kveðjur. Sindri er ekki einn af þeim mönnum sem láta hræða sig auðveldlega og fór hann yfir málið af yfirvegun og með hreinskilni að vopni.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -