Miðvikudagur 14. október, 2026
4.8 C
Reykjavik

Svona getur þú sparað stórfé með töfraráðum Álfþórs: „Kjánar sem bara eyða“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Ég vona að einhver geti nýtt sér þetta,“ segir Álfþór nokkur sem birti nokkur töfraráð fyrir þá sem ekki hafa sjálfir aga til að spara. Ráðunum beinir hann fyrst og fremst að ungu fólki sem eyði sífellt peningunum sínum og birti þau í fjölmennum hópi á Facebook, Sparnaðartips!.

Eftir að hafa rætt við ungmenni á vinnumarkaði sá Álfþór sig knúinn til að veita þeim praktísk sparnaðarráð. Ungmennin eru að hans mati kjakkakjánar sem eyði sífellt þannig peningarnir leki nánast úr veskjum þeirra.

Fyrir þau ungmenni sem erfitt eiga með að hugsa út í sparnað og aga sig til þess kemur Álfþór hér með þrjú einföld töfraráð:
„1. Sígarettur
Reykir þú? Ef ekki er ég hér með ráð. Þegar ég var sjoppu-unglingur tók ég eftir því að það fólk sem þurfti að fá að skrifa fyrir mat átti alltaf fyrir sígarettum. Ef það getur skrapað saman fyrir sígó getur þú það líka. Hvað kostar pakki á dag? 40.000 kr? Í byrjun mánaðar skaltu skella 40.000 krónum inn á sparnaðarreikning. Sjálfvirk greiðsla, ekki hugsa.
2 – Klink í bauk
Einfalt. Þegar þú notar seðla skaltu setja allt klink (og alla 500 króna seðla) beint í bauk. Þetta eru smáaurar sem þú færð þarna, en þeir safnast saman, og þú finnur ekki fyrir þessu. Nú notar þú ekki lengur seðla og klink, hefur kannski aldrei gert það, fyrir utan þegar þú fékst þér bland í poka sem barn. Fínt. Bankarnir eru með eitthvað sem heitir „sparað með korti.“ Þú ákveður hvað háa upphæð þú sparar þegar þú rennir kortinu og bankinn sér um rest. Þegar ég renni kortinu mínu hækkar greiðslan upp í næsta þúsund kall, mismunurinn rennur inn á sparnaðarreikning. Kaupi feitan börger fyrir 2150 með frönskum, kokteil og kók; 850 kr fara á sparnaðarreikning. Sjálfvirkar greiðslur, ekki hugsa.
3 – Þriðjungur af launum
Einfalt. Settu þriðjung af launum inn á sparnaðarreikning. Sjálfvirk greiðsla, ekki hugsa.“
[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -