Þann 6. apríl síðastliðinn leit Hjalti Ásgeirsson í spegil og hugsaði: „Það er eins og ég sé genginn 9 mánuði með þríbura“. Skömmu áður hafði hann þurft að leita á sjúkrahús vegna mikilla kviðverkja og þetta tvennt varð til þess að Hjalti ákvað að snúa blaðinu við. Á sjö vikum hefur hann náð ótrúlegum árangri því 16.5 kíló eru horfin.
Hjalti steig svo út úr þægindaramma sínum í gær og skrifaði færslu um breyttan lífstíl sinn. Þar birti hann einnig myndir sem sýna vel árangurinn. Í síðustu viku fór Hjalti svo til læknis í skoðun. „Ég sagði honum frá því að ég væri búinn að missa 16,5kg á 7 vikum á þessu mataræði og hann var svo hissa á því að hann ákvað að senda mig í blóðprufu til að skoða hvort ég væri með ofvirkan skjaldkirtil. Á sama tíma var prófað fyrir næringarskorti, s.s. hvort vantaði magnesium eða önnur næringar- og steinefni. Útkoman var sú að allt saman er í tiptop standi,“ segir Hjalti hreykinn.
En hvaða töfraaðferð beytti Hjalti til að ná þessum ótrúlega árangri. Hann deilir því hér með lesendum:
„Ég hóf nýjan lífstíl er kemur að mataræði. Ekki vottur af auka hreyfingu, bara breyting á mataræði!“
Markmiðið Hjalta var stórtækt. Að bæta úr miklum líkamlegum og andlegum kvillum, verkjum, óþægindum og tilheyrandi vandamálum og ná sér úr 111 kílóum niður í 90 kíló fyrir septembermánuð. Skemmst er frá því að segja að nú vantar einungis 2.3 kíló upp á að Hjalti nái september markmiðinu. „Þvílíkur léttir líkamlega og andlega en þó er nóg eftir og ég er ekki nærri því hættur!,“ segir Hjalti ákveðinn.

„Pæli ekkert í kaloríum, borða bara þegar ég er svangur og hætti þegar ég verð saddur. Mér hefur ekki liðið svona vel í líkama og sál frá barnæsku og er það allt nýju mataræði að þakka. Nú fer maður að bæta við hreyfingu, og byggja upp smá auka vöðvamassa meðan maður brennir síðustu kílóunum af fitu í burtu,“ segir Hjalti og bætir við að lokum:
„Ég var feitur, ég lifði við mikla verki, pirring, óþægindi og vanlíðan í líkama og sál alla daga, allan sólahringinn, allt árið um kring. Ég er núna á hárréttri leið sem hentar MÉR, mér líður ótrúlega vel og er hamingjusamari en nokkurntíma áður.“
Svona lýsir Hjalti árangrinum og vellíðan eftir breytinguna:
- 18,7 kg léttari
- Mitti minnkað um 21 cm (úr 125cm í 104cm)
- Blóðsykur hefur lækkað
- Blóðþrýstingur hefur lækkað úr 170/100 niður í 128/87
- Heildarkólestról hefur lækkað úr 7,6 niður í 5,36
- Súrefnismettun er góð
- Astminn hefur snarbatnað
- Allar meltingartruflanir og magavandamál/verkir horfið
- Andleg líðan ekki verið betri frá barnæsku
- Kvíði og stress mikið viðráðanlegra
- Mikið betra skap
- Svefn margfalt betri
- Hrotur margfalt minni, ef einhverjar
- Húð mikið betri
- Flasa/excem/þurrkur í hársverði er horfið
- Mikið meiri orka yfir daginn
- Laus við allar vöðvabólgur
- Verkir, óþægindi, pirringur og fl. í líkama og húð snarminnkað
- Mígreni og hausverkir heyra nánast sögunni til
- Minnið margfalt betra
Gamla mataræði Hjalta:
Skyndibiti, mikið af brisuðum mat, unninn matur, sælgæti að einhverju leiti á hverjum degi, gos á hverjum degi, bjór nánast á hverju kvöldi í 2 ár (1-4 litlir að jafnaði).
Nýja mataræði Hjalta:
Eingöngu dýraafurðir (kjöt, egg, ostur og þessháttar)
Eingöngu vatn (2-4 lítrar á dag)
Verið strangur á því að vera í 0.0-1g kolvetnum.

