Róbert Guðmundsson nokkur skrifar í Facebook-hóp sem heitir Íslendingar á Tenerife:
„Fallegu vinir það vantar talsvert af mat ennþá þannig að ég hvet ykkur til að leggja ykkar að mörkum að gleðja þá sem geta EKKI HALDIÐ JÓL og leggja inn á styrktareikning Hjálparsamtakana þó það sé ekki nema 500kr eða 1000kr og þeirra sem geta meira. 0370-26-017741 kt2611685459 setja kt Hjálparsamtaka Íslendinga kt 530114-0310 nú fer hver að verða síðastur ef við eigum vað geta gefi mat fyrir jólin.
ÉG VIL TAKA ÞAÐ FRAM AÐ ÞAÐ HAFA VERIÐ LAGÐAR 3000KR INN Á STYRKTAREIKNINGINN OG ENN VANTAR TALSVERT AÐ ÉG GETI HJÁLPAÐ ÖLLUM MARGT SMÁTT GERIR EITT STÓRT.“

Róbert bætir við:
„Please hjálpið okkur að hjálpa öðrum hjálparsamtök Íslendinga.“
Fólk í hópnum virðist allt efast mikið um að beiðni Róberts sé komin til vegna manngæsku eða hjartahlýju Róberts:
Hannesinascheving Virgild Chesterfield: „Róbert Guðmundsson hvers konar samtok eru þetta? Íslendingar??“
Róbert svarar: „Hannesinascheving Virgild Chesterfield Nei alla sem þurfa hjálp hvar sem er í heiminum.“
Fleiri spyrja Róbert um málið: „Vidar Eggertsson Hvernig fer úthlutun fram, hvaða reglur gilda og hver hefur eftirlit með að allt fari eftir settum reglum?“
„Hlynur Gylfason Það er eitthvað bogið við þetta…“
Færslan fær enn að standa, og Mannlíf fylgist með málinu.

