Fimmtudagur 5. mars, 2026
-0.2 C
Reykjavik

Sviðakjammi brann á Arnarhóli

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Óvenjulegt atvik þetta átti sér stað við styttuna á Arnarhóli. Þar hafði svangur maður kveikt eld í ruslatunnu til að koma sér upp eldunaraðstöðu. Lögreglan var kölluð til og kom þá á daginn að tilgangur íkveikjunnar var sá að elda sviðakjamma. Eldamennskan hafði farið úr skorðum og sviðakjamminn brann og tunnan bráðnaði. Hinn hungraði var í annarlegu ástandi og var vistaður í fangageymslu vegna atviksins.

Fyrr um kvöldið var lögreglu tilkynnt um ítrekaðar afstungur þar sem ekið hafði verið tvisvar sinnum á bifreiðar og stungið af. Lögregla hafði hendur í hári mannsins og færðu hann í fangageymslu. Auk þess lék grunur á að maðurinn væri undir áhrifum fíkniefna.

Þá voru tveir stöðvaðir grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -