Föstudagur 6. mars, 2026
3.8 C
Reykjavik

Svavar: „Viðreisn er í hefndar- og ófrægingarherferð gegn Ásgeiri” – „Þetta er þér ekki sæmandi“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Jónas Sigurgeirsson er með Facebook-síðu eins og meginþorri fólks á þessari plánetu og mögulega víðar. Hart var nýlega tekist á áðurnefndri síðu þótt Jónas kæmi þar sjálfur lítið við sögu.

Í aðalhlutverki var fyrrum sjónvarpsmaðurinn og núverandi nefndarmaður í atvinnuveganefnd Sjálfstæðisflokksins, Svavar Halldórsson:

„Ásgeir Jónsson var spurður út í hugmyndir Viðreisnar í gjaldmiðlamálum fyrir kosningar. Hann svaraði heiðarlega og svarið rataði í fréttir með þeim hætti að kjósendur (flestir) sáu í gegnum vitleysuna.

Nú er í gangi hefndar- og ófrægingarherferð gegn Ásgeiri,” skrifar Svavar og er svarað af fyrrum blaðamanninum Svanborgu Sigmarsdóttur og núverandi starfsmanni hjá Viðreisn:

- Auglýsing -

„Svavar Halldórsson, áttu við að Viðreisn standi fyrir einhverri hefndar- og ófrægingarherferð? Hvurslags vitleysu ertu eiginlega að bjóða fólki hérna? Þetta er þér eiginlega ekki sæmandi, Svavar.”

Ingvi Hrafn Jónsson leggur líka orð í belg: „Svavar Halldórsson, nkvl.”

- Auglýsing -

Svavar svarar þá Svanborgu:

„Ekki endilega flokkurinn sem slíkur Svanborg – ég geri ekki ráð fyrir því að flokksstofnanir hafi samþykkt neitt slíkt. En það er alveg ljóst að fólk sem tengist flokknum, við gætum kallað það flokkseigendur, er klárlega á bak við þetta.”

Svanborg svarar fyrir sig:

„Af hverju er það alveg klárt, Svavar? Er það svona sem Sjálfstæðisflokkurinn virkar og því finnst þér sjálfsagt að aðrir geri það líka?,” spyr Svanborg Svavar og fær svar frá honum að bragði:

„Þú veist nú ósköp vel að svona hegðun fer eftir innræti gerenda en ekki flokksskírteini. Og ég held þú ættir nú heldur að skammast í eigin flokkssystkynum sem eru sjóðheitir á eyrunum af rógsímtölum en að vera að atast í mér.”

Svanborg segir við Svavar: „Halt þú bara áfram í einhverjum rógsvangaveltum án þess að hafa nokkuð fyrir þér í því, annað en eigin hugmyndaflug, ef þér finnst það hæfa.”

„Verði þér að því ef þú virkilega vilt vera að atast í mér Svanborg, fyrir að færa hið augljósa í orð. Ég kýs að ganga út frá því að vitir ekki hvað er í gangi í skuggahornum eigin flokks. Ef þú hins vegar vilt vita hvað þitt eigið flokkseigandafélag er að bralla – taktu þá upp símann og heyrðu í nokkrum gömlum kollegum.”

 

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -