„Þetta var náttúrlega í miðjum faraldri, Una veikist, það er eiginlega akkúrat ár síðan. Hún veikist 18. júní og fór í heilaskurðaðgerð og allt í kjölfarið,“ segir Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra í Helgaviðtali Mannlífs.
„Svo veikist pabbi 1. október og hann var sko bara sprækasti maður í heiminum. Nokkrum dögum síðar fer Una í segulómun og fékk góðar niðurstöður úr henni, en pabbi bara veikist meira og meira og það var svo í janúar sem hann dó. Ég sakna hans ógurlega.“
Svandís hefur staðið í ströngu sem heilbrigðisráðherra í heimsfaraldri Covid-19 auk þess sem sorg og erfiðleikar í einkalífi hafa sett sitt mark.
„Ég held að það sem er mikilvægast þegar sorgin bankar upp á og þegar maður lendir í áföllum sé að muna að maður er ekki einn. Manni líður eins og maður sé það, en það er ekki þannig. Það eru svo ótal margir sem eru að glíma við erfiða hluti.“
Einlægt og ítarlegt Helgarviðtal við Svandísi Svavarsdóttur.

