Sigvaldi Kaldalóns – Svali – ákvað að flytja til Tenerife í desember árið 2017; með eiginkonu og börnum.
Hann rekið fyrirtækið Tenerifeferðir; ferðast með fólk um eyjuna.
En nú er komið að breytingum því ekki eru allir í fjölskyldu Svala jafnánægðir og hann sjálfur með dvalarstaðinn.

„Þetta er búinn að vera algjörlega frábær vetur hjá okkur í fyrirtækinu. Aldrei farið með jafn mikið af farþegum og núna á þessum fyrrihluta ársins og hlutirnir líta vel út þar. En annað gildir um drengina, þeir eru eiginlega alveg búnir að fá nóg af Tenerife og vilja komast heim til Íslands. Skiljanlega, þeir eru svo sannarlega búnir að láta á þetta reyna og því okkur bæði ljúft og skylt að leyfa þeim að fara heim,“ segir Svali í færslu á Facebook-síðu sinni.
Bætir við.
„Þetta þýðir flakk hjá mér fram og til baka á þessu ári. Stoppa reyndar í tvo góða mánuði í sumar á klakanum og ætlum við að reyna að ferðast eins og hægt er á þeim tíma og njóta Íslensku náttúrunnar.“
Jóhanna eiginkona Svala er að byrja að klippa aftur; hún er hárgreiðslukona að mennt.
„Jóhanna er að byrja að klippa aftur á Unique og ég verð með annan fótinn á Bylgjunni í vor og sumar. Starfa auðvitað áfram með fyrirtækið en með öðru sniði en verið hefur. Þannig að aftur verða hlutirnir aðeins í lausu lofti en það er allt í góðu, við erum að verða nokkuð vön því,“ segir Svali.