Mánudagur 9. mars, 2026
3.8 C
Reykjavik

Súsanna og neyslan: „Ég grét á Sæbrautinni, leið eins og ég væri búin að keyra yfir mikið af dýrum“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Súsanna var 18 ára greind með geðhvarfasýki eftir alvarleg geðrof og ánetjaðist ung fíkniefnum.

Hún sagði sögu sína í hlaðvarpsþættinum Eigin Konur.

Súsanna Sif Jónsdóttir, 30 ára námsmaður, ólst upp í Breiðholti á góðu heimili.

Hún var tólf ára gömul þegar hún byrjaði að nota kannabis og segir ekki hafa verið aftur snúið eftir fyrsta skiptið.

Súsanna var greind með geðhvarfarsýki átján ára gömul en byrjaði að finna fyrir einkennum mikið fyrr; í eitt skiptið ætlaði hún að hoppa niður af svölum því hún var viss um að fólk væri að reyna að drepa hana:

„svo var ekki aftur snúið“

„Ég var átta ára þegar ég fór að vera mjög döpur.

- Auglýsing -

Mamma fór með mig að leita aðstoðar því hún vissi ekki hvað var að.

Ég var mjög erfiður unglingur og erfið í skapi; það var alveg byrjað að nefna varðandi mig geðhvörf, þegar ég var 15-16 ára.

En á þessum tíma var ekki verið að greina börn svona ung. Þannig að ég fór ekki formlega í greiningu fyrr en ég var orðin lögráða; ég fór til geðlæknis þegar ég var 18 ára,“ segir Súsanna.

- Auglýsing -

Þegar Súsanna var í grunnskóla var mikið um áfengisneyslu á meðal ungra krakka í kringum hana. Hún var, eins og áður segir, aðeins tólf ára þegar hún byrjaði að nota kannabis, en henni var boðið það af eldri krökkum.

Hún neitaði fyrst, en skipti svo um skoðun og þá segir hún ekki hafa verið aftur snúið; hún segir fíkniefnin hafa fyllt upp í tómarúm innra með henni, sem hún vissi ekki að væri til staðar:

„Það er eins og ég hafi ekki tekið eftir því að ég hafi ekki verið heil, en svo var eins og þetta væri púslið sem vantaði.“

Innan fárra ára var Súsanna komin í neyslu á örvandi efnum og seldi fíkniefni til að fjármagna neysluna:

„Það var eina leiðin, eða selja líkama sinn. Ég reyndar gerði það ekki; eða ekki beint; ég átti ýmsa kærasta á þessu tímabili og ég er ekki viss um að ég hefði valið þessa menn í líf mitt ef það væri ekki fyrir hvað þeir áttu mikinn pening og hvað þeir áttu mikið dóp,“ segir Súsanna.

„Ég hélt að fólk væri að reyna að drepa mig“

Súsanna segir frá alvarlegu geðrofi þar sem hún kom sér í lífsháska:

„Ég hélt að fólk væri að reyna að drepa mig og sá alls konar ofsjónir. Ég var að keyra, já, ég var að keyra í geðrofi, og búin að vera vakandi ég veit ekki hvað lengi. Ég stoppaði einhvers staðar á Sæbrautinni því ég bara hágrét af því mér leið eins og ég væri búin að keyra yfir svo mikið af dýrum.

Ég sá bara dýr alls staðar á Sæbrautinni.“

Heldur áfram:

„Ég var á einhverjum tímapunkti stödd í blokk þar sem ég ætlaði að fleygja mér fram af svölunum af því ég hélt að það væri fólk að fara að ná mér. Fólk er hvort sem er að fara að drepa mig, og ég ætla ekki að gefa þeim það heldur gera þetta sjálf þá.

Fólkið sem var með mér stoppaði mig af og gaf mér alls konar eiturlyf til að ná mér út úr þessu ástandi, sem ég veit ekki hvort hafi verið góð hugmynd, en þau voru að reyna að hjálpa mér því ég var alveg farin.“

„þakklát að hafa ekki slasað neinn.“

Súsanna vann við að keyra á þessum tíma, ásamt því að selja fíkniefni:

„Ég var alltaf að selja eiturlyf, en ég var líka að vinna; ég þori varla að segja það – ég var í heimsendingaþjónustu. Ég er heppin að hafa ekki drepið neinn,“ segir hún en viðurkennir að hún hefði eitt sinn keyrt á kyrrstæðan bíl og sé mjög þakklát að hafa ekki slasað neinn.

Súsanna var alin upp á góðu heimili:

„Ég fékk gott veganesti í uppeldinu mínu, og mamma mín er metnaðarfyllsta kona sem ég veit um, og pabbi minn er duglegasti verkamaður sem ég veit um.

Ég var með góðar fyrirmyndir í lífinu, og þetta er andstæðan við það sem ég er; þetta er svo ólíkt mér. Ég gerði hluti sem ég hefði aldrei getað trúað að ég myndi gera,“ segir hún.

Saga Súsönnu er saga manneskju sem hefur lent í miklum raunum, og hefur tekið á sínum málum.

En því miður greindist Súsanna með krabbamein, árið 2017, sem hún er enn að glíma við. Vonandi tekst henni að vinna þann bardaga líkt og hún gerði í baráttunni við fíkniefnin.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -