Miðvikudagur 13. maí, 2026
5.8 C
Reykjavik

Sumarbústaður Gylfa Þórs settur á nauðungarsölu að beiðni Skattsins

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Sumarbústaður í eigu knattspyrnumannsins Gylfa Þórs Sigurðssonar hefur verið settur á uppboð hjá Sýslumanninum á Suðurlandi að beiðni Skattsins.

Sumarbústaðurinn sem um ræðir er í Grímsnes- og Grafningshreppi og fer uppboðið því fram hjá Sýslumanninum á Suðurlandi.

Fram kemur á uppboðsvef sýslumanna að eignin sé í „byrjun uppboðs“. Þá segir á vef Skattsins að það sé annað af þremur skrefum í nauðungarsölu. Nauðungarsala er aðgerð til að koma eign í verð á opinberu uppboði til að greiða þær skuldir sem hvíla á eigninni.

Samningur Everton og Gylfa rennur út í sumar

Samningur Everton og Gylfa rennur út í sumar en hann var keyptur til félagsins frá Swansea fyrir 45 milljónir punda árið 2017. Þá hefur Gylfi ekki leikið með landsliði Íslands síðan í nóvember 2020.

Gylfi Þór hefur verið í farbanni frá Bretlandi frá 16. júlí síðastliðnum þegar hann var handtekinn á heimili sínu í Manchester grunaður um að hafa brotið kynferðislega á ungmenni. Eftir handtökuna var honum sleppt lausum gegn tryggingu en settur í farbann sem rennur út 17. apríl næstkomandi.

Gylfi hefur ekkert tjáð sig um málið frá því það kom upp í sumar. Heimildir götumiðla í Bretlandi herma þó að Gylfi hafi harðneitað þeim ásökunum sem á hann hafa verið bornar.

- Auglýsing -

Gylfi var ekki á lista liðsins yfir það leikmenn sem liðið hefur mátt tefla fram í leikjum frá 1. september og má því ekki spila fyrir liðið. Everton hefur gefið það út að hann muni ekki spila með liðinu fyrr en rannsókn lögreglu er lokið.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -