Styrmir Gunnarsson fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins er á þeirri skoðun nauðsynlegt sé fyrir Íslendinga að losa sig við leifar frá dönsku konungshirðinni og telur að forsetaembættið hér á landi vera „beinlínis hlægilegt.“
Hann byrjar á því að segja að alltof mikið bil sé á milli þeirra Á Íslandi sem eru kjörnir fulltrúar og þeirra sem teljast til almennra borgara.

„Um leið og einstaklingur er kominn á þing telur hann sig ekki lengur eiga erindi við fólkið í landinu fyrr en nálgast næstu kosningar,“ segir Styrmir og bætir við að frá „þessu eru undantekningar en þær eru fáar,“ og beinir orðum sínum til þingmanna:
„Það væri gagnlegt að þingmenn ræddu þetta í kosningabaráttunni og útskýrðu þetta frá sínu sjónarmiði.“
Styrmir telur að ástæðan fyrir þessari gjá – sem hann telur að sé hreinlega stórt vandamál hér á landi – á milli kjörinna fulltrúa og almennings sé tilkomin og enn til staðar vegna þess að við Íslendingar höfum ekki lagt af gamla siði frá okkar gömlu nýlenduherrum frá Danmörku; leifar frá „gamla Íslandi.“

Að mati Styrmis eru þessar „leifar“ frá Dönum sem viðhalda „gamla Íslandi“ innfluttir frá stéttskiptum þjóðfélögum í Evrópu eins og Danmörku hér í „den“ þegar „háttsettir embættismenn töldu sig yfir aðra hafna.“
Styrmir segir löngu tímabært að ekki bara hreinsa „sorpkvörn“ hins íslenska samfélags heldur hreinlega skipta þeirri gömlu út fyrir nýja og losa sig endanlega við hinar dönsku „leifar.“
„Nú er kominn tími til fyrir Íslendinga að losa sig við þessar leifar sem eigi ekkert erindi hérna,“ segir Styrmir og beinir að lokum spjótum sínum að forsetaembættinu sem hann telur að sé úrelt og tilgangslaust:

„Aðrar leifar af siðum frá hinni stéttskiptu Evrópu er orðuglingrið og forsetaembættið sjálft. Hvort tveggja á að leggja niður. Það er beinlínis hlægilegt að það skuli hafa verið fluttir inn til Bessastaða hirðsiðir frá dönsku konungshirðinni!

Við eigum skipulega að útrýma þessum innfluttu siðum frá stéttskiptri Evrópu.“

