Eins og Mannlíf greindi fyrst allra fjölmiðla frá þá eru meiri líkur en minni á að Gautaborg rifti samning sínum við landsliðsmanninn Kolbein Sigurðsson eftir að upp komst um kynferðisbrot hans og að hann hafi reynt að leyna því eftir fremsta megni.

Sænskur blaðamaður sem þekkir vel til sænska boltans segir í spjalli við Mannlíf að hann reiknaði klárlega með því að dæmið hjá Kolbeini og Gautaborg myndi aldrei ganga upp; málið væri of alvarlegt og lítill möguleiki á að stuðningsmenn, leikmenn og forráðamenn gætu hugsað sér að hafa Kolbein hjá félaginu.

Vissulega hefur Gautaborg ekki enn rift samningi sínum við Kolbein, en samkvæmt sömu heimildum Mannlífs frá Svíþjóð er stutt í að það gerist:
„Þetta er búið spil, það sjá það allir. Og þegar stuðningsmenn eru farnir að hengja upp borða í mótmælaskyni þá er ljóst hvernig þetta endar. Það getur ekki annað verið en að það sé stutt í riftun Gautaborgar á samningnum við Kolbein.“

Stuðningsmenn Gautaborgar sumir hverjir hafa þegar látið til sína taka og þessar myndir sem fylgja fréttinni bera vott um það, en skilaboðin voru sett upp í skjóli nætur en deginum ljósara til hvaða aðila þau beinast.
Mannlíf mun áfram fjalla um málið.

