Miðvikudagur 11. mars, 2026
0.8 C
Reykjavik

Stríðsástand í Laugardal: Verði Klara rekin gæti FIFA tekið yfir stjórn KSÍ

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Mennta- og menningarmálaráðherra, Lilja Dögg Alfreðsdóttir, átti krísufund með stjórn KSÍ og Klöru Bjartmarz í dag, þar sem farið var yfir stöðu mála eftir að Guðni Bergsson formaður KSÍ og öll stjórn sambandsins sagði af sér vegna hneykslismála tengdum ofbeldi leikmanna landsliðsins á síðustu árum og þöggun og yfirhylmingu KSÍ með meintum gerendum.

Nú berast þær fréttir innan úr KSÍ að meðlimir stjórnarinnar, sem sagði af sér í gær og boðaði aukaþing eftir um fjórar vikur þar sem ný stjórn verður kjörin, óttist að ef framkvæmdastjóri KSÍ, Klara Bjartmarz, víki úr starfi, taki FIFA, Alþjóðaknattspyrnusambandið, einfaldlega við stjórnlausu KSÍ.

Síðan Guðni og stjórnin sögðu af sér hefur verið mikill þrýstingur á að Klara Bjartmarz víki einnig, sérstaklega á þeirri forsendu að hún hefur um langt árabil starfað hjá KSÍ og hefur verið alger lykilstarfsmaður sambandsins þegar kemur að öllu daglegu amstri; Klara hefur gefið það út að hún ætli ekki að segja af sér.

Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.

Hver niðurstaðan verður svo varðandi fund Lilju Daggar og KSÍ mun svo væntanlega koma í ljós hvort Klara haldi áfram og hvort eitthvað sé hæft í því að FIFA geti einfaldlega tekið yfir stjórn KSÍ.

Í samtali við Vísi sagði Borghildur Sigurðardóttir, annar varaformanna KSÍ,  að ef stjórnin myndi ákveða að víkja framkvæmdastjóra úr starfi, væri mögulegt að Alþjóðaknattspyrnusambandið FIFA myndi líta svo á að KSÍ væri í raun óstarfhæft apparat sem þyrfti inngrip. Slíkt er vel mögulegt á grundvelli neyðarlaga, en slíkt ku aðeins hafa gerst tvisvar áður í sögunni; Í Grikklandi vegna fjármálakrísu og í Bosníu vegna stríðsástands.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -