Þjónusta Valitor er komin í lag aftur eftir umfangsmikla netárás sem gerð var á fyrirtækið Valitor, sem er þjónustufyrirtæki á sviði greiðslumiðlunar og greiðslulausna.
Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir:

„Þjónusta Valitor er nú að mestu komin í lag aftur eftir umfangsmikla netárás. Enn er þó möguleiki á einstaka truflunum og unnið er að því að gera allar þjónustur virkar. Rétt er að árétta að árasin beindist ekki að innri kerfum og ógnaði ekki gagnaöryggi.“
Fyrirtækið biðst „innilegrar velvirðingar á þessum truflunum og við munum halda áfram að fylgjast grannt með kerfum okkar. Við ítrekum að árasin beindist ekki að innri kerfum og ógnaði ekki gagnaöryggi.“

