Laugardagur 18. júlí, 2026
11.9 C
Reykjavik

Stofugangur á smitsjúkdómadeild A7 sem er fyrir einstaklinga smitaða af COVID-19

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Landspítalinn birti í dag á Facebook-síðu sinni ljósmyndir sem teknar eru á smitsjúkdómadeild A7 í Fossvogi, en hún er í dag aðeins fyrir einstaklinga smitaða af COVID-19 kórónaveirunni. Myndirnar tók Þorkell Þorkelsson ljósmyndari, sem starfa á Landspítalanum.

„Keli heimsótti á dögunum deild A7 í Fossvogi og fékk að fljóta með á stofugang, en deildin sú er mikið í sviðsljósinu þessa dagana. A7 er í augnablikinu eingöngu ætluð COVID-19-smituðum eins og fleiri deildir spítalans.“

Mynd / Facebook LSH Þorkell Þorkelsson
Mynd / Facebook LSH Þorkell Þorkelsson
Mynd / Facebook LSH Þorkell Þorkelsson
Kela og – Ásvaldur Kristjánsson kvikmyndagerðarmaður hjá spítalanum. Mynd / Facebook LSH Þorkell Þorkelsson

 

Eins og segir í færslunni þá er meginviðfangsefni A7 annars almenn lyflæknisfræðileg vandamál, greining, meðferð og hjúkrun sjúklinga með sýkingar og smitsjúkdóma. Flestir sjúklingar sem leggjast inn á deildina koma frá bráðadeild, bráðalyflækningadeild eða gjörgæsludeild, en auk þess er tekið á móti sjúklingum með öll almenn lyflæknisfræðileg vandamál. Á deildinni eru sérútbúnar einangrunarstofur ætlaðar sjúklingum sem þurfa einangrun vegna smitsjúkdóma eða skerts ónæmiskerfis. Starfsmenn eru um 50 talsins. Deildarstjóri er Stefanía Arnardóttir og yfirlæknir er Már Kristjánsson.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -