Talsverð eftirvænting ríkir í samfélaginu í dag, mögulega ótti, varðandi næstu skref ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks, VG og Framsóknar, vegna Covid sem hefur ekki bara látið á sér kræla á nýjan leik, heldur er að dreifa sér með ógnarhraða hér á Íslandi.
Og ekki bara það, heldur virðist ríkisstjórnin eiga í miklum og að því er virðist nánast óleysanlegum deilum innan frá; Áslaug Arna hefur til að mynda tjáð sig opinberlega að hún sé með öllu ósammála hertum Covid-aðgerðum á nýjan leik, þrátt fyrir að það blasi við öllum sem hafa ljósin kveikt að stórkostleg lífshætta gæti verið að skapast á Íslandi; sérstaklega vegna hins hrikalega Delta-afbrigðis Covid-veirunnar, sem hefur tekið gríðarlegan fjölda mannslífa á heimsvísu á örstuttum tíma. Einnig er það þeim sem eru með ljósin kveikt ljóst að Áslaug Arna og Svandís Svavarsdóttir eru ekki bara ósammála, heldur ríkir mikill kuldi í samskiptum þeirra sem hefur haft afar slæm áhrif á samstarf flokkanna í ríkisstjórn.

Þórólfur Guðnason, sóttavarnarlæknir, sendi áðurnefndri Svandísi heilbrigðisráðherra minnisblað í gær og er talið að það innihaldi tillögur um mjög svo hertar aðgerðir hér á landi og líka á landamærunum. Sagt er að hagsmunasamtök tengd ferðaþjónustu nötri nú af hræðslu, skjálfi jafnvel á beinunum, vegna fyrirhugaðrar lokunar Íslands mjög fljótlega, eftir því sem heimildir Mannlífs herma.


Hinn glöggi og afar rökfasti blaðamaður, Hafnfirðingurinn og fyrrum Káti Pilturinn, Jakob Bjarnar Grétarsson telur að stjórnarsamstarfið muni ekki lifa lengi:
„Ég spái því að stjórnin muni springa út af minnisblaði Þórólfs,“ segir Jakob og heldur áfram:
„Það skiptir stjórnarflokkana nákvæmlega engu máli, komnir með allt sitt í hús, en gæti hins vegar reynst gott veganesti fyrir þá í kosningabaráttuna. Þeir geta þá sperrt sig við misvonsvikna kjósendur sína; slegið öll vopn úr höndum hinnar ósamstæðu stjórnarandstöðu.“

Og nú er bara að fylgjast áfram grannt með þróun mála, mögulega með grímu fyrir munni og tvo lítra af handspritti við höndina, biðjandi almættið um að allt fari vel að lokum.

