Kynferðisleg áreitni sem starfsmaður Bessastaða varð fyrir af hálfu samstarfsmanns hefur verið kærð til lögreglu.
Maðurinn sem varð fyrir ofbeldinu vill nafnleynd en í samtali við Fréttablaðið segir hann nánar frá því sem átti sér stað.
Málið hefur haft miklar afleiðingar og ollið manninum og fjölskyldu hans sársauka. Auk þess varð fjölskyldan fyrir töluverðu fjárhagstjóni en maðurinn sá enga aðra kosta völ en að segja starfi sínu á Bessastöðum lausu og flytja.
Í viðtalinu segir maðurinn frá hvernig hegðun geranda hafi náð hámarki árið 2018 í starfsmannaferð til Parísar. Eftir ferðina fékk gerandi skriflega áminningu frá forsetaembættinu. Auk þess baðst gerandi afsökunar og fór í tímabundið leyfi.
Í Parísarferðinni hafði gerandi káfað á manninum og sýnt öðrum sömu hegðun.
Eftir tímabundna leyfið sneri gerandi aftur til starfa og kom það þolanda mikið á óvart.
Þolandinn, sem óskar nafnleyndar, gagnrýnir vinnubrögð fyrrverandi forsetaritara, Örnólfs Thorssonar, og segist ekki hafa fengið þá málsmeðferð sem viðeigandi hefði verið.
Sif Gunnarsdóttir, núverandi forsetaritari sagði að máli þessu hefði verið lokið í október 2019 með samþykki allra sem áttu í hlut. En þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Guðna Th. Jóhannessonar.
Uppfært: Ranghermt var að -Guðmundur Andri Thorssn væri forsetaritarinn sem ko,m að máluim. Hið rétta er að Örnólfur Thorsson var forsetaritari. Það hefur verið leiðrétt í textanum.

