Ólafur Þór Gunnarsson er læknir og situr einnig í velferðarnefnd og hann segir að „við þurfum að fá bestu og mestu mögulegu upplýsingar frá okkar sérfræðingum.“
Ólafur er áhyggjufullur yfir stöðunni hér varðandi Delta-afbrigðið:
„Það kemur sumpart á óvart hvað sérfræðingarnir meta þennan veirustofn mun hættulegri og að mörgu leyti aggressífari heldur en fyrri stofna, og það er klárlega eitthvað sem við þurfum að halda áfram að skoða, og skoða það vel og vandlega því þetta er í raun nánast ný veira, ef svo mætti segja, og við þurfum að taka ástandið eins og það er mjög alvarlega.
Ólafur segir að Delta-afbrigðið hagi sér „allt öðruvísi en fyrri afbrigði og fer mun hraðar hvað varðar útbreiðslu.“
Hann nefnir einnig að „staðan er í raun mun alvarlegri en ég hélt og þó hef ég og velferðarnefnd fylgst náið og vel með þróun og útbreiðslu Delta-afbrigðisins.
Spurður hvort hann haldi að veirufaraldurinn verði notaður í komandi kosningabaráttu segir hann að svo megi alls ekki fara:
„Staðan er það alvarleg að við getum ekki farið að leika okkur með öryggi almennings, og það má hreinlega alls ekki nota Covid 19 í kosningaáróðri, það er í það minnsta mín skoðun. Við megum ekki gera þetta hræðilega Covid 19 mál að einhverju pólitísku bitbeini,“ segir Ólafur og bætir við:
Okkar mesta gæfa hingað til í faraldrinum hefur verið sú að fara í einu og öllu eftir vísindamönnunum og þeirra sem best þekkja til málsins, og það væri mjög skynsamlegt að halda því áfram; við erum með galopið samfélag og litlar varnir og þurfum að passa vel upp á viðkvæmu hópana; reyna eftir fremsta megni að koma í veg fyrir að þeir smitist, og það þarf að skima sérstaklega vel það fólk sem er að umgangast þessa hópa.“

