Fimmtudagur 8. október, 2026
6.8 C
Reykjavik

Sprenging hjá Stígamótum í seinni #metoo-bylgjunni

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -
Frá því að ný #metoo-bylgja hófst hefur biðlistinn hjá Stígamótum þrefaldast. Síðustu tvær vikur, eða frá því Mannlíf hóf umræðuna með því að opna Sölvamálið svokallaða, hafa tæplega 100 einstaklingar leitað til samtakanna eftir aðstoð.
Stígamót hjálpar því fólki sem hefur verið beitt kynferðislegu ofbeldi. Fjöldi þeirra sem eru á biðlista eftir aðstoð samstakanna eru 162 einstaklingar, af þeim eru um 90 prósent konur. Oftast má finna um það bil 50 manns á biðlistanum og hefur fjöldinn því þrefaldast á síðustu vikum. Frá áramótum hafa 313 haft samband við Stígamót eða í kringum 50 manns á mánuði. Frá því #metoo-bylgjan hófst hefur fjöldinn aftur á móti tvöfaldast því 97 einstaklingar hafa leitað til samtakanna síðustu tvær vikur.
„Þetta höfum við séð gerast margoft áður en kannski ekki með jafn miklum þunga og í þetta skipti. við erum að gera allt til í okkar valdi stendur til að taka þetta fólk hratt inn og veita því aðstoð,“ sagði Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir, talskona Stígamóta, í samtali við RÚV.
[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -