„Ég skráði mig í þessa keppni síðastliðið haust, en svo gerðist það óhugsanlegasta í desember; ég var lögð inn á bráðamóttöku í lok mánaðarins og í kjölfarið inn á gjörgæsludeild, þar sem mér var ekki hugað líf,“ segir hinn hálfþrítugi lögfræðingur og keppandi í þríþraut, Sonja Símonardóttir og bætir við:
„Allir héldu að ég væri að deyja.“
Við dauðans dyr í janúar – Keppti í hálfum járnkarl í júní – Lifði af þrjá lífshættulega sjúkdóma
Sonja fékk slæma þvagfærasýkingu í desember sem leiddi til sýklasóttarlosts og: „Ég hafði aldrei fengið þvagfarasýkingu og fann engin einkenni; sýkingin mallaði í mér og skilaði sér síðan út í nýrun; þaðan út í blóðið.“ Það var svo í lok desember í fyrra sem Sonja fer að finna fyrir miklum bakverkjum:
„Ég vissi ekki að nýrun væru staðsett svona neðarlega í bakinu; hélt að þetta væri æfingarálag og hélt áfram að æfa.“
Stóð ekki í lappirnar
Sonja segir að „sársaukinn versnar og versnar þar til ég fæ mikinn hita, uppköst og gat ekki staðið í lappirnar vegna sársauka.“
Þá var hringt á sjúkrabíl og Sonja strax lögð inn á gjörgæslu.
Þess ber að geta að keppni í þríþraut – hálfum járnkarli – er ekki fyrir neina aukvisa; þeir þurfa að synda tvo kílómetra, hjóla níutíu kílómetra og hlaupa hálft maraþon, sem er rétt rúmir tuttugu og einn kílómetri.
En aftur að veikindum Sonju.
Þegar niðurstöður lágu fyrir varðandi heiftarleg veikindi hennar kom í ljós „að ég hafði fengið sýklasóttarlost – Sepsis – brátt andnauðarheilkenni -ARDS – og ekki nóg með það, heldur líka fjöllíffærakerfisbilun.“
Það næsta sem beið Sonju var öndunarvél en „ég lá í öndunarvél á gjörgæsludeild í níu sólarhringa og dvaldi á spítala í tvær vikur.“

Hálfur járnkarl
Þrátt fyrir hræðilegar batahorfur sýndi Sonja að hún er miklu meira en hálfur járnkarl; hún lifði af þrjá lífshættulega sjúkdóma:
„Eitt það fyrsta sem fólk sagði við mig þegar ég kom úr öndunarvélinni var að ég mætti ekki taka þátt í neinum keppnum þetta árið; yrði að gleyma þessum járnkarli sem fór fram í síðasta mánuði.“
Sonja sagðist skilja vel áhyggjur fólks af heilsu hennar.
„Ég skildi þetta og fann að ég þurfti tíma til að byggja upp líkamann á nýjan leik eftir þessi hræðilegu veikindi.“
Sonja segir að það hafi nánast verið búið að afskrifa hana, veikindin voru svo hræðileg og hættuleg:
„Eins og segir í útskriftarbréfinu mínu þá fékk ég þrjá lífshættulega sjúkdóma en með stífri gjörgæslumeðferð þá blessunarlega lifði ég þetta af.“
Tók tíma að safna kjarki
Hún segir að eftir að hún losnaði úr öndunarvélinni hafi hún fyrst um sinn þurft hjálp við allar daglegar athafnir:
„Það var mikið sjokk og ég fór í mikla afneitun, en á sama tíma áttaði ég mig á því að þetta var mikið sjokk fyrir líkamann. Mig hefði aldrei grunað að þetta gæti komið fyrir mig, því ég lifi heilbrigðu lífi og hreyfi mig mikið.“
Eftir dvölina í öndunarvélinni tók við tími endurhæfingar þar sem byrjunin var fólgin í göngutúrum og henni var tjáð af læknum að það tæki líkamann eitt ár að ná aftur sextíu prósentum af venjulegri orku; draumurinn um þríþrautarkeppni væri dáinn.
„Ég var alveg búin að afskrifa þessa keppni.“
Sonja segir að „það hafi tekið tíma að safna kjarki á ný eftir veikindin; fór hægt af stað, en í apríl segi ég þjálfaranum mínum að ég ætli ekki að keppa. Hún segir mér að hugsa málið og segir að ég sé á góðu róli. Þá fylltist ég svakalegum eldmóð.“
Sonja tók „ákvörðun um að keppa þrátt fyrir veikindin,“ og það kom fjölskyldu hennar ekki á óvart enda Sonja þekkt fyrir mikið keppnisskap; segir keppnina í júní hafa hjálpað henni að treysta líkamanum á ný eftir veikindin, aðeins nokkrum mánuðum eftir að hún lá við dauðans dyr.
Og segir að lokum að það að „ná síðan að klára svona áskorun og að líkaminn skili sér í gegn er ótrúlega dýrmætt. Þannig að ég og líkaminn erum orðnir vinir vera vinir á nýjan leik.“
Heimild: visir.is

