Sigríður Ragna Árnadóttir er 31 árs einstæð tveggja barna móðir tveggja dætra, ellefu og átta ára gamlar. Mikið hefur verið lagt á Sigríði undanfarið ár og er hún það veik að hún á erfitt með að segja sína erfiðu sögu en vinir hennar hafa lagt henni lið. Í samtali við Mannlíf sagði Sigríður þó að jafnvel þetta hafi verið erfitt væri mannshugurinn þess eðlis að hún væri róleg þrátt fyrir þessi erfiðu veikindi.
Móðir og dóttir með krabbamein
Yngri dóttir Sigríðar var greind með nýrnakrabbamein og einhverfu sem kallaði á mikla umönnun af hendi Sigríðar, enda þurfti litla telpan að ganga í gegnum erfiða krabbameinsmeðferð. Á sama tíma greindist Sigríður sjálf með leghálskrabbamein og þurfti að fara í hormónameðferð í kjölfarið. Meðferðirnar gengu vel og voru þær báðar á batavegi þegar skellurinn kom. Sem betur fer hefur telpan öðlast bata en er að sjálfsögðu undir áframhaldandi eftirlit.
Síðastliðið sumar byrjaði Sigríður að sjá miklar breytingar á hægra brjósti. Í fyrstu mynduðust blæðingar og særindi á geirvörtu sem ekki vildu gróa þrátt fyrir að læknar skrifuðu upp á allar mögulegar tegundir af kremur og sterum. Það gekk aldrei að fá þá til að skoða þetta nánar.

Alvarlegur hjartagalli
Að því kom að Sigríður fór að taka eftir miklum bjúg sem læknar fundu enga ástæðu fyrir og var ekkert gert í málinu. Að lokum fékk hún loks greiningu á brjóstakrabbameini en var sú vegferð bæði löng og ströng auk þess að vera lituð mistökum af hálfu heilbrigðiskerfisins.
Í janúar þessa árs fékk Sigríður nýrnasteina, sem hún náði að losa á spítalanum og meðan hún var þar voru teknar myndir af maganum og sást ekkert óvenjulegt á þeim myndum fyrir utan nýrnasteinanna.
Mánuði síðar tekur læknir Sigríðar eftir því að hún er komin með afar háan blóðþrýsting og telur að um galla í hjartaloku sé að ræða, sem mögulega kalli á aðgerð. Hún er send til hjartalæknis og finnst mikill vökvi í gollurhúsinu og grind með alvarlegan hjartagalla. Skrifað var upp á fjórar tegundir stera til að reyna að losna við vökvann en á þeim fjórum mánuðum sem Sigríður var í meðferðinni bar hún lítinn sem engann árangur.
Þriðja og svo fjórða stigs krabbamein
Þrautaganga Sigríðar hélt áfram því í maí síðastliðin byrjar brjóst hennar að aflagast og leitar hún þá til annars læknis sem sem sá strax að eitthvað alvarlegt væri að. Við brjóstamyndatöku þann 31. maí síðastliðin greinist Sigríður með þriðja stigs brjóstakrabbamein. Sýnatökur, blóðrannsóknir og fleiri myndatöku sýndu að krabbameinið var búið að dreifa sér í lifrina.

Fyrri myndatökur og skannanir höfðu allar misst af krabbameininu sem reyndist vera á fjórða, og alvarlegasta stigi krabbameins.
Læknateymið hóf rannsóknir til að ákvarða nákvæma tegund krabbameinsins og núna í júní kom í ljós að Sigríður hefur arfgengt gen sem kallast p53. Um er að ræða afar sjaldgæft gen og mega þeir sem það bera ekki undir neinum kringumstæðum fara í geislameðferð þar sem hún er þeim lífshættuleg. Aftur á móti verður hún að gangast undir mjög árásargjarna lyfjameðferð til að vinna þennan bardaga.
Gríðarlegur kostnaður
Vinir Sigríðar segja að kostnaðurinn sem lagst hafi á Sigríði vegna lækna- og lyfjakostnaðar þennan stutta tíma hafi reynst henni gríðarlega mikill, sem eitt og sér taki afar mikið á í þessum erfiðu aðstæðum. Hún sér fram á mikinn kostnað við áframhaldandi meðferðir og taka sjúkratryggingar aðeins hluta af þeim.
Þeir sem vilja leggja Sigríði lið á þessum erfiðu tímum er bent á söfnun sem vinir hennar hafa hafið og er að finna hér
Einnig er hægt að leggja beint inn á Sigríði í gengum eftirfarandi bankaupplýsingar.
Sigríður Ragna Árnadóttir, kt. 240290-3249, reiknisnúmer: 0115-05-066583.
Eða eins og vinkona hennar skrifar á söfnunarsíðuna: „Munum að allt smátt gerir gagn og safnast saman hratt“.

