- Auglýsing -
„Samúðarkveðjur elsku hjartans hjarta. Á engin orð. Hugsa til ykkar, sendi ljós og styrk og megi allar heimsins vættir vernda þig og börnin ykkar“.
Þessa samúðarkveðju til Margrétar Brynjólfdóttur, ekkju Sveins Eyjólfs Tryggvasonar, og sjö barna þeirra má lesa á samfélagsmiðlum en fólk er harmi lostið yfir fráfalli Sveins sem fórst af slysförum í blóma lífsins.
Mikill fjöldi fólks hefur sent sínar innilegustu samúðarkveðjur og ljóst er að hugur margra er hjá ekkjunni og börnunum.
Það hjón höfðu verið búsett á Patreksfirði til fjölda ára og stunduðu útivist af krafti.
Meðal annars var viðtal við Svein Eyjólf í sjónvarpsþættinum Landanum árið 2019 þar sem fylgst var með honum síga eftir eggjum í Látrabjarg ásamt félögum sínum.
Mannlíf greindi frá fráfalli Sveins Eyjólfs í gær en hann fórst af slysförum síðastliðinn sunnudag er hann drukknaði í botni Patreksfjarðar.
Vinir Sveins Eyjólfs og eiginkonu hans, Margrétar, hafa efnt til söfnunar til að styðja fjölskylduna á þessum erfiðu tímum.
Fyrir þá sem vilja leggja söfnunni lið er reikningurinn á nafni Margrétar, nr. 0123-15- 030020, kt. 190670-5039.

