Karlmaður á sjötugsaldri hefur verið úrskurðaður af héraðsdómi Reykjavíkur, í gæsluvarðhald til 6. janúar. Er maðurinn grunaður um barnavendar- og blygðunarsemislagabrota gegn börnum. Er hann einnig grunar um að hafa reynt að hitta börn í kynferðislegum tilgangi.
Samkvæmt frétt Rúv í kvöld fór lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fram á gæsluvarðhaldi yfir manninum og var krafan samþykkt af héraðsdómi óbreytt. Byggir krafan á grun um að maðurinn muni halda brotum sínum áfram gangi hann laus og því sé nauðsynlegt að verja almenning gegn brotum hans. Hefur maðurinn kært úrskurðinn til Landsréttar.
Heimildir Rúv herma að um er að ræða manninn sem Mannlíf, ásamt fleiri miðlum, hefur fjallað um að undanförnu en DV gaf honum viðurnefnið „Snapchat-perrinn“. Maðurinn er fyrrverandi rannsóknarlögreglumaður.
Sjá meira hér: Hörður vildi hitta 12 ára stúlku á Dominos: „Ábyrgðin er foreldranna. Ég er heiðarlegur maður“

