Samkvæmt frétt Smartlands eru hjónin Kristján Þór Magnússon og Guðrún Dís Emilsdóttir, eða Gunna Dís eins og hún er kölluð, að skilja.

Kristján Þór og Gunna Dís fluttust til Húsavíkur þegar hann tók við starfi sveitarstjóra, en áður hafi Gunna Dís getið sér gott orð hjá RÚV, bæði í útvarpi og sjónvarpi, og víst að margir sakna hennar úr fjölmiðlunum.
Kristján Þór, sem er sveitarstjóri í Norðurþingi, ku hafa tilkynnt samstarfsmönnum sínum fyrir stuttu að miklar breytingar væru að verða á hans högum.
Samkvæmt sömu grein segir að Gunna Dís hyggist flytja aftur til Reykjavíkur og mögulega tekur hún upp þráðinn að nýju í fjölmiðlunum.
Kristján Þór hefur undanfarnar vikur verið í veikindaleyfi, en tjáði starfsmönnum sínum að hann hlakkaði til að koma aftur til starfa strax eftir áramót.

