Föstudagur 8. maí, 2026
4.8 C
Reykjavik

Skipverji féll útbyrðis á íslensku loðnuveiðiskipi – Færeyingar brugðust skjótt við

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Á níunda tímanum í gærkvöld var þyrlusveit Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna þess að skipverji á íslensku loðnuveiðiskipi féll útbyrðis út af Sandvík á Reykjanesi. Sömuleiðis voru sjóbjörgunarsveitir á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Suðurnesjum kallaðar út.

Fram kemur á vef Gæslunnar að áhöfn færeysks loðnuveiðiskips, sem var í grenndinni, hafi brugðist skjótt við og tekist að kasta björgunarhring til skipverjans. Stuttu síðar komu skipsfélagar mannsins honum til bjargar með léttbát.

Áhöfn þyrlunnar sótti síðan manninn og flutti hann á Landspítalannn í Fossvogi og er líðan hans eftir atvikum góð.

 

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -