Fimmtudagur 8. október, 2026
6.8 C
Reykjavik

Ólöf segir skrúfur ítrekað losaðar af hjólum í Vesturbæ: „Sonur minn flaug af hjólinu sínu“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Ósvífnir aðilar sem vinna alvarleg skemmdarverk á hjólum virðast vera á kreiki í Vesturbæ Reykjavíkur.

Sonur Ólafar nokkurrar lenti í miður skemmtilegu atviki, en skrúfur höfðu verið losaðar af framdekki hjóls hans og datt það undan þegar hann hjólaði af stað með þeim afleiðingum að hann flaug af hjólinu.

Hér má sjá hjól sonar Ólafar

Drengurinn beið aðhlynningar á Læknavaktinni með móður sinni þegar hún greindi frá þessu í Facebook hópi hverfisins.

Sonur Ólafar sagði móður sinni frá því að þetta væri ekki fyrsta hjólið sem skemmdarverk væru unnin á, því þrír vinir hans lentu í svipuðu atviki í vikunni á undan.

Einnig rekur Ólöfu minni til sambærilegra frásagna í fyrra, en eftir því sem hún best veit eru þessi skemmdarverk helst unnin fyrir utan Grandaskóla. Hún fjallar um málið í færslu í hverfishópi íbúa á Facebook:

„Sonur minn flaug af hjólinu sínu í dag þar sem búið var að vinna skemmdarverk á því og losa skrúfur af fremra dekkinu. Hann er nú haltur og við erum að bíða uppi á Læknavakt, en það gefur auga leið að þetta hefði getað farið mun verr. Guttinn sagði mér að svo margir sem þrír vinir hans hefðu lent í sambærilegu í síðustu viku,“ segir Ólöf og bætir við:

- Auglýsing -

„Nú velti ég fyrir mér nákvæmlega hvað er búið að gera í þessu og hvort búið sé að tilkynna þessi mál til lögreglunnar, en sjálf hyggst ég gera það. Ég vona allavega að ekki þurfi banaslys til að tekið verði alvarlega á þessum málum. Í öllu falli mælist ég til þess að við ræðum þessi mál við börnin okkar bæði svo þau séu meðvituð um að kanna hjólin sín og taki ekki þátt í svona skemmdarverkum nú eða síðar.“

Flestum íbúum hverfisins er mjög brugðið. Hallfríður er ein þeirra. „Þetta er skelfilegt! Getur sannarlega endað með hryllingi ef ekkert er að gert,“ segir Hallfríður. Maríu líst illa á blikuna. „lHver anskotinn er að fólki að gera svona?,“ spyr María.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -