Skæruliðadeild Samherja varð fyrir áfalli í gær þegar yfirstjórn Samherja baðst afsökunar á bolabrögðum og vélráðum þeirra Þorbjörns Þórðarsonar, fyrrverandi fréttamanns og leynipenna,Örnu Bryndísi Baldvins McClure og Þorsteins Steingrímssonar skipstjóra. Þá má ekki gleyma þætti Jóns Óttars Ólafssonar leynilöggu sem í umboði Þorsteins Más Baldvinssonar sat um Helga Seljan og sendi honum ógnandi SMS-skilaboð úr leyninúmer. Allt hefur þetta hyski stigið yfir öll mörk í mannlegum samskiptum og aðgerðum gegn meintum óvinum Samherja. Afsökunarbeiðnin í gær, sem inniheldur nokkrar málsbætur neðanjarðarfólksins, þykir ekki endilega vera dæmi um iðrun, öllu fremur ótta vegna þess álitshnekkis sem fyrirtækið hefur orðið fyrir. Allir eru þessir aðilar nú á flótta undan fjölmiðlum og treysta sér ekki til að standa fyrir sínum málum. Ólíklegt þykir að skæruliðarnir verði reknir úr störfum sínum en þeir eru væntanlega á skilorði hjá fyrrtækinu alræmda …
Skæruliðar Samherja á skilorði

VefTv
- Auglýsing -
Hlaðvörp
- Auglýsing -
[facebook_large_like_btn]
Athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
Lestu meira
- Auglýsing -
Veistu meira um málið?
Endilega láttu heyra frá þér! Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.
Deila
Nýtt í dag
Mest lesið í vikunni
Í fréttum er þetta helst...
- Auglýsing -
