Laugardagur 14. mars, 2026
-1.7 C
Reykjavik

„Sjálfstæðisflokkurinn hlýtur að ræða hvort fullreynt sé að ná árangri með formanni og forystu“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Páll Magnússon segir bless við Alþingi eftir fimm ára veru þar sem þingmaður Sjálfstæðisflokksins; segist sáttur við sitt framlag. Hann segir það deginum ljósara að Sjálfstæðisflokkurinn glími við mikinn vanda:

„Eftir að ég tók þá ákvörðun að hætta á þingi líður mér sífellt betur með hana. Áhuginn hefur að miklu leyti dofnað og neistinn kulnað.“ Og „þegar fór að líða að prófkjörinu núna í maí fann ég að sú ögrun sem var upphaflega fyrir hendi var farin, en það væri of djúpt í árina tekið að segja að þingmannsstarfið hafi valdið vonbrigðum, því margt fannst mér skemmtilegt og ýmislegt gat ég lagt til málanna. Ég hætti ekki í neinni biturð heldur kveð ég þingið nokkuð sáttur.“

Páll birti í sumar grein í Morgunblaðinu sem fjallaði um stöðu Sjálfstæðisflokksins og þann vanda sem hann standi frammi fyrir; nokkurskonar greiningu á því hvers vegna flokkurinn hafi verið nánast naglfastur í kringum 25 prósenta fylgi all frá frá hruni árið 2008.

„Stundum finnst mér að Sjálfstæðisflokkurinn sé orðinn nokkurs konar framkvæmdastjóri Íslands; hann hefur verið lengi í ríkisstjórn og formaðurinn lengi í fjármálaráðuneytinu,“ og að mati Páls orsaki þetta að hugsjónir og raunveruleg stjórnmál víki fyrir skriffinnsku og embættisræði,“ og bætir við:

„Árið 1929 runnu Íhaldsflokkurinn og Frjálslyndi flokkurinn saman í Sjálfstæðisflokkinn og flestar götur síðan bar hann gæfu til að vera breiðfylking borgaralegra afla. Nú hefur brotnað úr flokknum í báða enda og flokkurinn er í tilvistarkreppu.“

Páll nefnir einnig að „mér finnst að Sjálfstæðisflokkurinn ætti að taka frumkvæðið í að laga agnúa á fiskveiðistjórnunarkerfinu, sem í grundvallaratriðum er gott. Þegar kemur að grundvallar­atvinnuvegi þjóðarinnar á Sjálfstæðisflokkurinn ekki að sitja hjá aðgerðalaus.“

- Auglýsing -

Páll segir að forysta flokksins þurfi að horfa í spegil og reyna að uppfæra stöðu stjórnar og flokksins sjálfs:

„Í Sjálfstæðisflokknum hefur skapast andrými fyrir þá skoðun að þú sért að bregðast flokknum með því að gagnrýna forystuna. Ég vil hins vegar meina að þú sért að bregðast með því að gera það ekki þegar þörf er á, eins og nú er. Hollusta við formann má ekki breytast í meðvirkni, því þá er hún skaðleg; Sjálfstæðismenn hljóta að ræða hvort það sé fullreynt að ná árangri með núverandi formanni og forystu.“

Sögur hafa verið uppi um að Páll sé ekki hættur í stjórnmálum og að mögulega muni hann stofna nýjan flokk eða ganga til liðs við annan flokk, og þar hefur mest borið á sögusögnum þess efnis að Viðreisn gæti orðið næsti áfangastaður Páls, eða að hann reyni fyrir sér í næstu sveitarstjórnarkosningum. Hann útilokar ekkert en segist lítið hugsa um slíkt í dag, hvað svo sem framtíðin muni bera í skauti sínu:

- Auglýsing -

„Já, já, það er ýmislegt skrafað og skeggrætt, en ég er ekkert að pæla í því núna.“

Páll færir í tal að hann hafi stutt núverandi ríkisstjórn en fljótlega gert sér grein fyrir að stjórnin myndi hvorki lækka skatta eða draga úr opinberum umsvifum.

„Í meginatriðum hafa þær vonir sem bundnar voru við ríkisstjórnina ræst. En það voru komin ýmis gliðnunarmerki í stjórnina rétt áður en faraldurinn skall á,“ og segir Páll að einkum hafi Sjálfstæðismenn ekki verið sáttir við andstöðuna við einkarekstur í heilbrigðismálum og VG verið ósátt við að frumvarp um miðhálendisþjóðgarð væri fast. Hann færir einnig í tal að Covid 19 hafi þétt raðir stjórnarliða,  og að framhald stjórnarinnar – fái flokkarnir til þess fylgi ráðist af VG, sem séu stóra spurningarmerkið í kosningunum; hann nefnir að helmingur kjósendahópsins ætli ekki að kjósa VG aftur, en fylgið hafi hins vegar aðeins dalað um þrjú prósent og virðist flokkurinn að mati Páls hafa að stórum hluta skipt um fylgjendur.

Það vakti mikla athygli þegar Páll, árið 2016, vann bæði sitjandi ráðherra í prófkjöri og flokkurinn hlaut 31 prósent í kjördæminu, en samt hafi Páli ekki verið úthlutað ráðherrastól og fundist þá sig og kjósendur sína í Suðurkjördæmi hafa verið hlunnfarna; skoðun sem Páll fór ekki leynt með:

„Ég var hissa. Á þessum fimm árum áttaði ég mig hins vegar á því að ég hefði ekkert þurft að verða svona hissa. Ég kom utan frá í pólitíkina án þess að eiga mér neitt bakland eða sögu í flokknum. Það getur verið býsna torsótt inni í Sjálfstæðisflokknum. Þegar kemur að ráðuneytum skiptir það ekki endilega mestu máli að hafa sem sterkast lýðræðislegt umboð, heldur ráða aðrir þættir meiru um það.“

Heimild: Fréttablaðið

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -