Miðvikudagur 14. október, 2026
4.8 C
Reykjavik

Sjáðu skrípamyndina sem veldur skjálfta – Morgunblaðið stendur með Ingó Veðurguði

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Það er deginum ljósara að Morgunblaðið stendur þétt við bakið á Ingó Veðurguði sem ásakaður hefur verið af tugum kvenna um kynferðislegt ofbeldi.

Mál málanna að undanförnu er kynferðisásakanir á hendur Ingó Veðurguði, sérstaklega þegar ljóst varð að hann myndi spila á næstu Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum – stjórna hinum geysilega vinsæla brekkusöng sem fyrrum alþingismaðurinn Árni Johnsen gerði landsfrægan fyrir áratugum síðan.

Mogginn stendur með Ingó.

Ingó hefur séð um téðan brekkusöng óslitið frá árinu 2013, og um verslunarmannahelgina helgina næstu blasir enn einn brekkusöngurinn í umsjón Ingós við þjóðhátíðargestum.

Skopmynd eða skrípamynd Morgunblaðsins í dag hefur vakið athygli enda fréttaefni að eitt stærsta dagblað Íslands taki svona skýra afstöðu með meintum kynferðisbrotamannni og taki svona skýra stefnu gegn meintum þolendum; þetta er deginum ljósara þegar myndin er skoðuð.

Það er teiknarinn umdeildi, Helgi Sig. sem gerði myndina og er þetta langt í frá fyrsta skiptið sem mynd hans vekur mikla athygli, flestar þó fyrir að vera umdeildar og jafnvel hataðar yfir í að vera elskaðar af einhverjum; alveg örugglega af þeim sem stjórna í Hádegismóum þar sem Morgunblaðið er einmitt til húsa.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -