Fimmtudagur 8. október, 2026
7.8 C
Reykjavik

Sindri verður ævinlega stoltur af baráttunni við Veðurguðinn: „Ingó fær ekki krónu frá mér“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Sindri Þór Hilmarsson er einn af þeim fimm einstaklingum sem sem Ingó Veðurguð hefur kært fyrir meiðyrði, og kippir sér lítið upp við það og sendir Ingó kaldar kveðjur. Sindri er ekki einn af þeim mönnum sem láta hræða sig auðveldlega og í færslu fer hann yfir málið af yfirvegun og með hreinskilni að vopni.

„Eins og margir hafa lesið nú þegar hefur Ingólfur Þórarinsson tekið þá viðbúnu ákvörðun að krefjast bóta, ellegar hóta kæru, frá þeim sem höfðu hátt upp á síðkastið og tjáðu sig um ásakanir á hendur honum. Ég er þar á meðal, enda fór ég mikinn í þeirri umræðu á samfélagsmiðlum,“ segir Sindri sem „ofbauð algjörlega sú eitraða gerendameðvirkni sem þar logaði og sú staðreynd að gítarglamur poppara virtist mörgum meira virði en skelfilegar sögur tuga þolenda. Kannski ekki nema von þar sem þolendurnir eru, eftir því sem við best vitum, konur og samfélagið hefur lengi sett tilfinningar og ásýnd karla skör hærra en líf og heilsu kvenna.“

Sindri segist hafa í umræðunni notað „óheflað mál af ásettu ráði, fannst engin ástæða til að sykurhúða málefnið eða tala undir rós með neinum hætti. Það stuðaði marga, sem er gott því það sem um ræðir er hið ljótasta mál. Þessi hnífur á að vera þungur. Þó grunar mig að Ingólfi hafi ekki síður sviðið sú Twitter umræða er ég hóf og sýndi svo ekki verður um villst að þessi orðræða er ekki ný af nálinni. Þar tjáðu sig tugir ofan á tugir fólks, aðallega konur sem lýstu því hvernig þær höfðu á sínum yngri árum verið gagngert varaðar við Ingólfi og hans hegðun.“

Sindri nefnir að „konur lýstu því hvernig þær fengu óumbeðin viðreynsluskilaboð, boð á rúntinn, boð um „skuttl“ heim af böllum og margt fleira þegar þær voru börn að aldri. Starfsfólk félagsmiðstöðva lýsti því hvernig tekin hefði verið ákvörðun um að ráða Ingólf ekki á skemmtanir vegna óviðeigandi hegðunar hans. Allt tjáir þetta fólk sig undir nafni og fyrir allra augum. Ég gæti haldið lengi áfram. Þessar sögur eru alltof alltof margar og ná aftur ein tólf – þrettán ár.“

- Auglýsing -

Og ljóst má vera af orðum Sindra að hann er ekkert lamb að leika sér við:

„Ég veit að ég get verið bölvaður ruddi. Gamall kraftlyftingagaur, boxari og þungarokkari sem lærði að rífa kjaft áður en ég lærði almennilega að tala. Það gleður mig því ómælanlega að nú þegar ég verð loksins látinn standa í dómssal vegna einhvers sem ég sagði þá er það eitthvað sem ég stend heilshugar við, í baráttu sem ég verð ævinlega stoltur af að hafa ljáð krafta mína og er hvergi nærri hættur. Já, ég segi dómssal, því ég er hræddur um að Ingólfur verði að bæta sér upp auraleysið annarsstaðar en í mínum vösum. Hjá mér fær hann ekki krónu með gati. Komi það sem koma kann, ég mæti spenntur!“

- Auglýsing -

Hann nefnir það „að kæra fugla eins og mig fyrir það sem ég læt út úr mér á internetinu er gott og blessað. Ég tel mig hafa sagt í einu og öllu satt og rétt frá og er tilbúinn að standa við það allt saman. Biðst ekki afsökunar á neinu af því. Ingólfi finnst að sér vegið og kýs að fara þessa leið í því máli.“

Sindra finnst kæra Ingós vera „ómerkileg og lykta af örþrifaráðum,“ en segist gera sér „fulla grein fyrir því, líkt og ég gerði þegar ég lét ummælin frá mér, að hann hafi þennan rétt.“

Honum finnst lélegt að „kæra til lögreglu í þeirri von að afhjúpa konur sem hræddar tjáðu sig um gróft ofbeldi undir nafnleynd. Rifu upp sár sín, misgróin, í von um að það kæmi öðrum til varnar. Konum sem gengur gott eitt til. Það þykir mér óþokkabragð og nýjar lægðir í þessum annars ósmekklega málaflokki. Ég vona innilega að Ingólfur beri einhvern tímann gæfu til að skammast sín rækilega fyrir það.“

 

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -