Sindri Þór hefur staðið í framlínunni hvað varðar kynferðisofbeldi gegn konum og er einn þeirra sem Ingó Veðurguð kært. Hann fékk senda óhugnanlega hótun sem sjá má á mynd með þessari grein.
En Sindri er, eins og flestir vita, hvergi banginn, enda maður sem stendur við stóru orðin og óttast afskaplega fátt, ef eitthvað.

Hann segir einfaldlega um hótunina:
„Svona til að lina ótta þá er ég ekki hræddur við þennan aumingja (joijo00 á snap). Hann getur, og er að hóta mér öllu mögulegu en engu sem ég hef ekki úrræði í að mæta svo „no worries.“
Og bætir við:
„Er á leiðinni niðrí bæ. Hmu ef ykkur vantar easy 10k. Ef hann eða einhver annar vill finna mig þá er ég í símaskránni, ekki flókið. Tbh þá er ég ekki hræddur við þetta grey. En þar er ég trúlega í forréttindastöðu. Örugglega konur sem geta ekki sagt það sama.“

