Athafnamaðurinn Sigmar Vilhjálmsson hefur á „tilfinningunni að við búum í tvöföldu samfélagi“ hér á Íslandi og að gerður sé mannamunur á fólki hvað varðar Covid 19 – þeim skæða fjanda sem skekur íslenskt samfélag og heiminn allan.
Og ofantalið pirrar Sigmar mjög svo mikið og hann vill meina að staðan í dag varðandi heimsfaraldurinn sé eins og í kappleik þar sem eigast við „opinberir starfsmenn og starfsmenn einkageirans,“ og að opinberu starfsmennirnir sé að bursta þann leik.
Sigmar telur og nánast fullyrðir að starfsmenn einkageirans upplifi í tilveru sinni og veruleika tillitsleysi frá ráðamönnum íslensks samfélags:
„Sú orðræða ráðamanna í úrræðum og óskir þeirra um þolinmæði tekur ekkert tillit til starfsmanna einkageirans,“ segir Sigmar og bætir við:
„Ráðamenn gera einfaldlega ráð fyrir því að allir geti bara unnið heima og tekið sitt sumarfrí.“
