Mánudagur 19. janúar, 2026
3.8 C
Reykjavik

Sigursteinn varð skyndilega óttasleginn í Blómasetrinu: „Missti á einni mínútu líkamlegan mátt“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Sigursteinn Másson, rithöfundur, blaðamaður og aðgerðasinni, lýsir á Facebook-síðu sinni hrollvekjandi upplifun sem hann varð fyrir á dögunum í Blómasetrinu í Borgarnes. Hann varð upp úr þurru og án alls aðdraganda gífurlega óttasleginn eftir að hafa misst allan mátt.

„Ég upplifði skyndilegan ótta 10. ágúst þegar ég missti á einni mínútu líkamlegan mátt og gat varla talað. Þetta gerðist hér í Blómasetrinu í Borgarnesi, sem betur fer, því yfirveguð viðbrögð þeirra Kötu og Svövu skiptu sköpum að ég örvænti ekki,“ segir Sigursteinn.

Hann segist hafa markvisst róað sig niður ásamt þeim sem voru á staðnum. „Svava nuddaði axlir mínar og höfuð og Kata róaði mig með einstakri nærveru sinni. Ég bað almættið um hjálp í hljóði um leið og ég spurði um þær breytingar sem ég þyrfti að gera á lífi mínu. Ég prófaði svörin með sjálfum mér, eitt af öðru, og fékk svör þannig að í hvert sinn að ég hitti á rétt svar þá var eins og ýtt væri á rofa í rafmagnstöflu. Allan tímann passaði ég öndunina,“ segir Sigursteinn.

Honum tókst að halda þessu í skefjum og var niðurstaða lækna að hann væri hraustur líkamlega. „Á innan við hálftíma var ég kominn til baka en örþreyttur næstu tvo daga. Læknisskoðun og blóðprufur leiddu í ljós að ég er hraustur líkamlega og blóðþrýstingur eins og hjá unglingi. Það var andleg streita sem slökkti á höfuðrofanum mínum á mánudag í síðustu viku. Nú er ég aftur kominn á þennan paradísarstað til að reyna að skilja betur þessa reynslu, þessa viðvörun, hlusta á sjálfan mig og umhverfið og undirbúa breytingar á minni tilveru,“ segir Sigursteinn.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -